883. spurningaþraut: Hér er Fucking-stig í boði!


Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Á mótum hvaða ríkja er Dauða­hafið?

2.  Nít­uroxíð eða N20 er lit­laus gas­teg­und sem er notuð til ýmissa hluta og hefur það sér m.a. til ágætis að vera ekki eld­fim. Gasið er þó blandað út í ýmiss konar elds­neyti, bæði í eld­flaugum, kappakst­urs­bílum o.fl. Upp­haf­lega var gasið einkum notað við deyf­ingar og er það jafn­vel enn. Hvað er útbreiddasta nafnið á nít­uroxíði? 

3.  Hvað nefn­ist sá hluti Dan­merkur sem er áfastur meg­in­landi Evrópu?

4.  Í hvaða ríki er borgin Auckland?

5.  Reyndar er til annað nafn á þeirri borg: Tāmaki Makaurau. Á hvaða tungu­máli heitir Auckland þessu nafni?

6.  Hver er menntun Guðna Th. Jóhann­es­sonar for­seta Íslands?

7.  Hvað nefn­ist nú bær eða borg sem fyrrum hét Godthåb?

8.  Borg ein er í tíunda sæti yfir evr­ópskar borgir að mann­fjölda. Á tímum Rómverja var hún um tíma kölluð Lutetia. Hvað heitir hún nú?

9.  Árið 2020 skipti smá­þorpið Fucking um nafn. Í þorp­inu búa aðeins rúm­lega 100 manns og þeir höfðu lengi vel góðan húmor fyrir því hvaða hug­renn­inga­tengsl vökn­uðu hjá þeim sem sáu nafnið, en að lokum voru íbú­arnir samt farnir að hafa ama af nafn­inu, og þá var nafn­inu sem sé breytt. En í hvaða ríki var þorpið Fucking? Og svo fæst eitt Fucking-auka­stig fyrir að vita hvaða nafn er nú á þorp­inu.

10.  Avent­inus, Capitolinus, Caelius, Esquilinus, Palat­inus, Quirinalis, Vimina­lis. Hvaða sjö nöfn eru þetta?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þessi kona hér?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ísraels og Jórdaníu.

2.  Hlát­ur­gas.

3.  Jótland.

4.  Nýja Sjálandi.

5.  Maórísku.

6.  Hann er sagn­fræð­ingur.

7.  Nuuk.

8.  París.

9.  Fucking var í Aust­ur­ríki en nefn­ist nú Fugging.

10.  Nöfnin á hinum sjö hæðum Róma­borgar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd er Olivia Newton John.

Á neðri mynd er Guðrún Agn­ars­dóttir.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár