872. spurningaþraut: Hér er spurt um bæði Puccini og Rocky-myndirnar

872. spurningaþraut: Hér er spurt um bæði Puccini og Rocky-myndirnar

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað sýnir myndin hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvar er Almanna­gjá?

2.  Hvaða fjöl­skylda heldur gjarnan til í Balmoral-kast­ala?

3.  Hvers konar tón­verk er ítalska tón­skáldið Giacomo Puccini þekkt­astur fyrir?

4.  Hvað heitir amer­íski leik­ar­inn sem lék aðal­hlut­verkið í Rocky-mynd­unum?

5.  Hver er útbreiddasta trjá­teg­undin á Íslandi?

6.  Á Mön-eyju einni, sem telst til Bret­landseyja, fæð­ast óvenju oft kettir sem eru óvenju­legir að einu leyti, sem sé hvaða leyti?

7.  Í Eyjaálfu eru 11 sjálf­stæð ríki. Átta þeirra eru mjög lítil eyríki en hin þrjú eru býsna stór. Ástralía er nátt­úr­lega langstærst en hver eru hin ríkin tvö af þeim stóru? Nefna þarf bæði. 

8.  Í hvaða firði á Íslandi er Hjalt­eyri?

9.  Einn af þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins sagði óvænt af sér þing­mennsku 2008 eftir að hafa gert klaufa­leg mis­tök við að senda út tölvu­póst. Hvað hét hann?

10.  Þann 17. des­em­ber 1966 fór fram bálför hálf­sjö­tugs karls í Kali­forníu sem hafði and­ast tveim dögum áður úr lungna­krabba­meini. Eftir bálför karls­ins spunn­ust hins vegar miklar og furðu­legar sögur og þjóð­sögur um útför­ina og annað sem laut að dauða hans. Út á hvað gengu þær sögur?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er stúlkan á mynd­inni?  Hún er núna orðin ögn eldri en á mynd­inni en ekk­ert mjög samt!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Á Þing­völlum.

2.  Breska kon­ungs­fjöl­skyldan.

3.  Óperur.

4.  Stallone.

5.  Birki.

6.  Rófu­lausir.

7.  Nýja-Sjáland og Papúa-Nýja Gínea.

8.  Í Eyja­firði.

9.  Bjarni Harð­ar­son.

10.  Hann átti að hafa látið frysta lík sitt í von um end­ur­lífgun og lækn­ingu síðar meir. Þetta var sem sé Walt Disney. En það er ekk­ert hæft í sög­unum.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri mynd var tekin meðan kreppan mikla stóð yfir í Banda­ríkj­unum um og eftir 1930. Til að fá stig þurf­iði því að nefna krepp­una miklu og Banda­ríkin.

Á neðri mynd­inni er Sanna Marín núver­andi for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Konan á myndinni hét Florence Owens Thompson og var frumbyggi í báðar ættir. https://en.wikipedia.org/wiki/Florence_Owens_Thompson
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár