871. spurningaþraut: Rússneskir stjórnarandstæðingar, lifandi og dauðir

871. spurningaþraut: Rússneskir stjórnarandstæðingar, lifandi og dauðir

Fyrri auka­spurn­ing:

Ef myndin prent­ast vel má sjá þétt­býl­is­stað einn þarna efst. Hvað heitir sá?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi er áin Guadalquivir?

2.  Áin Onyx er ekki nema 32 kíló­metra löng en eigi að síður lengsta áin í heilli heims­álfu. Hvaða heims­álfu?

3.  „Sunnu­dags­kvöld til mánu­dags­morg­uns.“ Hver skrif­aði fræga smá­sögu sem svo hét?

4.  Hvaða skáld­verk samdi William Shakespe­are önnur en leik­rit? — svarið þarf að vera þokka­lega nákvæmt.

5.  Hvaða ríki ræður Korsíku?

6.  Hvernig er bíll Andrésar Andar á lit­inn?

7.  Hvað er franski kon­ung­ur­inn Charlemagne yfir­leitt kall­aður á íslensku?

8.  Úkra­ínu­menn unnu Eurovision í vor og reglum sam­kvæmt ætti keppnin að ári að fara fram í Úkraínu. Vegna inn­rásar Rússar verður ekki af því en í stað­inn verður keppnin haldin ... hvar?

9.  Rúss­neskir stjórn­ar­and­stæð­ingar eiga til að vera skamm­lífir. Árið 2015 var einn helsti and­stæð­ingur Pútins skot­inn til bana á brú rétt hjá Kreml en hann var þá að vinna að skýrslu um þátt Pútins og rúss­neskra her­sveita í átökum í aust­ur­hér­uðum Úkraínu. Hvað hét þessi karl?

10.  Annar stjórn­ar­and­stæð­ingur lifði naum­lega af bana­til­ræði þegar eitri virð­ist hafa verið komið fyrir í nær­buxum hans, og hann situr nú í fang­elsi. Hvað heitir hann?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Fólk af væg­ast sagt mis­jöfnu sauða­húsi kemur við sögu í banda­rískri sjón­varps­s­eríu sem nú er búið gera um fjórar þátt­araðir — og þeirri fjórðu er nýlokið. Hvað heitir þessi sería?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Spáni.

2.  Suð­ur­skauts­land­inu.

3.  Ásta Sig­urð­ar­dóttir.

4.  Sonn­ettur. Kvæði dugar ekki alveg.

5.  Frakk­land.

6.  Rauður.

7.  Karla­magnús.

8.  Bret­landi. 

9.  Nemtsov.

10.  Navalný.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Þétt­býl­is­stað­ur­inn heitir Stykk­is­hólmur.

 

Sjón­varps­s­er­ían heitir Westworld.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár