870. spurningaþraut: Þemaþrautin er um Svíþjóð núna

870. spurningaþraut: Þemaþrautin er um Svíþjóð núna

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir þessi sænska kona?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað heitir for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar?

2.  Hvaða ár var Olof Palme myrtur?

3.  Kiruna heitir borg ein í Svíþjóð. Fyrir hvað er hún fræg?

4.  Hvað er Kebneka­ise? Er það: heima­bær Alfreds Nobels á Skáni — hæsta fjallið í Svíþjóð, við landa­mæri Noregs — kast­ali Kristínu Svía­drottn­ingar — safn þjóð­sagna, gefið út á 18. öld — þjóð­legur osta­réttur úr Smá­löndum?

5.  Hversu margir eru Svíar? Eru þeir 6,2 millj­ónir — 8,2 millj­ónir — 10,2 millj­ónir — eða 12,2 millj­ónir?

6.  Hún fædd­ist 5. apríl 1950 í Jönk­öp­ing og komst í sviðs­ljós heims­ins árið 1974. Og þar hélst hún síðan í ára­tug og var þá óhætt að segja að hún væri ein af fræg­ustu konum heims­ins og nálega allir þekktu and­litið á henni. Og gera jafn­vel enn. Hvað heitir hún?

7.  Hvaða sænska borg stendur and­spænis Kaup­manna­höfn?

8.  Hver af sögu­hetjum Astrid Lindgren var gjarnan á þak­inu?

9.  Svíar hafa átt ótal fræga lista­menn á nán­ast öllum sviðum. Einn þeirra var kvik­mynda­leik­stjóri sem lést tæp­lega níræður 2007. Myndir hans voru einkar list­rænar, sumum fannst þær hægar og þungar en hann hafði gríð­ar­leg áhrif á aðra kvik­mynda­gerð­ar­menn. Hvað hét hann?

10.  Hvað heitir stærsta eyjan við Svíþjóð?

***

Seinni aðal­spurn­ing:

Hvað heitir konan hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Magda­lena Anderson.

2.  1986.

3.  Járn­námur

4.  Kebneka­ise er hæsta fjallið í Svíþjóð. 

5.  Svíar eru nú rétt rúm­lega 10,2 millj­ónir.

6.  Agnetha Fältskog, söng­kona í ABBA.

7.  Málmey.

8.  Kalli. (Kalli á þak­inu.)

9.  Ingmar Bergman.

10.  Gotland.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Konan á efri mynd­inni heitir Viktoría og er krón­prinsessa.

Konan á neðri mynd­inni er rit­höf­und­ur­inn Selma Lagerlöf, fyrsta konan sem fékk Nóbels­verð­laun í bók­menntum.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár