866. spurningaþraut: Stærsta sandalda í Evrópu, hvar er hún?

866. spurningaþraut: Stærsta sandalda í Evrópu, hvar er hún?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða ár er miðað við að íslam hafi upp­haf­ist. Var það árið 410 — 510 — 610 — eða 710?

2.  Hvar varð eld­gos á Íslandi árið 1918?

3.  Hvaða dýr var sagt koma með börnin sam­kvæmt mið­alda­þjóð­sögum í Evrópu?

4.  Hvað var eina komm­ún­ista­ríkið í Evrópu þar sem hrinda þurfti stjórn­inni frá völdum með valdi?

5.  Hvaða Íslend­ingur var nýlega val­inn einn af þremur stjórn­endum rann­sóknar sem fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna stendur fyrir á sprengju­árás sem gerð var á fang­elsi í Úkraínu?

6.  Hver var for­seti Rúss­lands á undan Pútin?

7.  Hvaða tungu­mál er útbreidd­ast í Sviss?

8.  Pilat er hún kölluð, stærsta sand­alda í Evr­ópu­ríki. Hún er rúm­lega 100 metra há, 2,7 kíló­metra löng frá norðri til suð­urs og um 500 metra breið. Millj­ónir ferða­manna koma að skoða sand­öld­una á hverju ári. En í hvaða landi er Pilat?

9.  Hvaða fyr­ir­bæri er kallað elrir?

10.  Við hvað fékkst rúss­neska konan Anna Akhmatova? Hér þarf nákvæmt svar.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi karl var á sínum tíma íþrótta­maður í fremstu röð. Hvað heitir hann?

***

Svör við auka­spurn­ingum:

1.  610.

2.  Í Kötlu.

3.  Stork­ur­inn.

4.  Rúmenía.

5.  Ingi­björg Sólrún.

6.  Jeltsín.

7.  Þýska.

8.  Frakk­landi.

9.  Trjá­teg­und.

10.  Hún var ljóð­skáld. Rit­höf­undur dugar ekki.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er María Sigrún Hilm­ars­dóttir frétta­maður RÚV. Að venju duga tvö skírn­ar­nöfn ef fólk notar þau bæði, svo María Sigrún dugar vel fyrir stigi.

Á neðri mynd­inni er danski fót­bolta­mark­vörð­ur­inn Peter Schmeichel.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Seinni aukaspurning:
    Markvörðurinn Peter Schmeichel er einn af þessum skemmtilegu og einstökum markmanni, sem þegar er kominn í sögubækurnar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár