Segja uppsögn Eggerts í kjölfar Vitaliumálsins óútskýrða

Eggerti Þór Krist­ó­fers­syni, for­stjóra Festar, var sagt upp störfum, segir Við­skipta­blaðið, þrátt fyrir að almenn­ings­hluta­fé­lagið hafi sent frá sér til­kynn­ingu um annað. Ekki virð­ist vera ein­ing um upp­sögn­ina í hlut­hafa­hópnum. Við­skipta­blaðið setur upp­sögn Eggerts í sam­hengi við mál Vitaliu Lazarevu, sem vændi tvo stóra hlut­hafa félags­ins um að hafa brotið gegn sér kyn­ferð­is­lega en annar þeirra var einnig stjórn­ar­for­maður þess.

Segja uppsögn Eggerts í kjölfar Vitaliumálsins óútskýrða
Segja Eggert hafa verið rek­inn Við­skipta­blaðið fjallar um það í dag að Eggert Þór Krist­ó­fers­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Festar, hafi verið rek­inn úr starfi. Í blað­inu er upp­sögnin sett í sam­hengi við Vitaliu-málið svo­kall­aða. Mynd: n1

Eggert Þór Krist­ó­fers­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Festar, var rek­inn en hætti ekki af sjálfs­dáðum hjá almenn­ings­hluta­fé­lag­inu, segir Við­skipta­blaðið. Fjallað er um starfs­lok Eggerts í blað­inu í dag og eru þau sett í sam­hengi við Vital­íu­málið svo­kall­aða. Í blað­inu er fjallað um það að tveir af stærstu einka­fjár­fest­unum í hlut­hafa­hópi Festar, Þórður Már Jóhann­es­son, og Hregg­viður Jóhanns­son, hafi tengst því máli.  Þórður Már var meðal ann­ars stjórn­ar­for­maður Festar þar til í jan­úar.  Aðrir sem höfðu aðkomu að Vital­íu­mál­inu voru Arnar Grant og Ari Edwald. 

Vítalía Lazareva steig fram í þætti Eddu Falak, Eigin Konum, í upp­hafi þessa árs.  Þar lýsti hún atburðum sem áttu sér stað í sum­ar­bú­stað­ar­ferð með  fjór­mennningum Þórði Má, Arnari, Hregg­viði og Ara. „Fólk er held ég ekki að átta sig á því hversu stórt þetta var. Margir til dæmis halda að þetta hafi „bara“ verið eitt­hvert þukl. Þetta fór alveg yfir öll mörk,“ sagði Vitalía meðal ann­ars í þætt­inum.  Opin­ber­arnir Vitaliu leiddu til þess að þeir aðilar sem hún sak­aði um að hafa  brotið gegn sér drógu sig í hlé í ýmsum hlut­verkum sínum í við­skipta­líf­inu. Þórður Már hætti meðal ann­ars sem stjórn­ar­for­maður Festar. 

Eggert talaði opinberlega um hita

En áður en Vitalía steig fram í við­tal­inu í árs­byrjun 2022 höfðu sögur um það grass­erað eftir að hún birti frá­sögn um atburða­rás­ina á Instragram í lok októ­ber 2021. Eggert sagði meðal ann­ars í við­tali við Stundina að „hiti“ hefði verið á fyr­ir­tæk­inu vegna þess. „Ég hef fengið sím­töl frá ýmsum aðilum varð­andi málið en ekk­ert form­legt erindi hefur verið sent á mig eða félagið vegna máls­ins.“

Eggert steig því opin­ber­lega fram og ræddi um málið, jafn­vel þó það hafi snert stjórn­ar­for­mann þess og tvo hlut­hafa, áður en málið varð opin­bert í raun. 

Stundin gerði ítrek­aðir til­raunir til að ná tali af Eggerti í gær og dag vegna máls­ins en án árang­urs.

Stundin gerði sömu­leiðis til­raunir til að hringja í stjórn­ar­menn Festar en  án árang­urs.

Þórður og Hreggviður tengdir við frásögnina

Athygli vekur að í frétt Við­skipta­blaðs­ins er ekki rætt við Eggert sjálfan en samt eru ítar­legar lýs­ingar á því hvernig honum var sagt upp störfum. Þá er heldur eng­inn af stjórn­ar­mönnum Festar tek­inn í við­tal um málið. Í raun er eng­inn við­mæl­andi í við­tali um mála­vöxtu. 

Þá er einnig athygli­vert í frétt­inni hvernig Hregg­viður Jónsson og Þórður Már Jóhann­es­son eru tengdir við frá­sögn­ina, tveir menn sem lentu í kasljósi fjöl­miðla vegna Vítal­íu­máls­ins, án þess að þessi teng­ing þeirra við umfjöll­un­ina eigi sér sýni­legar skýr­ingar í því sem sagt er. 

Þetta bendir til að ýmis­legt sé ósagt um starfs­lok Eggerts Þórs Krist­ó­fers­sonar hjá Festi, eins og Við­skipta­blaðið raunar veltir upp. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár