765. spurningaþraut: Gjóður, Sonatorrek, Berbar, margt fleira

765. spurningaþraut: Gjóður, Sonatorrek, Berbar, margt fleira

Fyrri auka­spurn­ing:

Í jan­úar síð­ast­liðnum náð­ist þessi ljós­mynd utan úr geimnum. Hvað er að ger­ast þarna og HVAR?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Gjóður heitir með­al­stór fugl, 60 sentí­metrar að lengd og með 1,8 metra væng­haf. Hann finnst víða um heim og hefur sést á Íslandi. Hér á Íslandi á gjóð­ur­inn líka nána frænda í fugla­heimum. Hverjir eru þessir frændur gjóðs­ins á Íslandi?

2.  Hvar í ver­öld­inni eru Berbar upp­runnir?

3.  Hver orti Sonator­rek?

4.  Og HVAR orti hann það?

5.  Nafnið á einum nytja­fiski við Íslands­strendur er þannig að sé einum bók­staf bætt við það ein­hvers staðar, þá fæst nafn á annarri fisk­teg­und sem er náskyld þeirri fyrri en að vísu ekki nytjuð mikið, af ein­hverjum ástæðum. Hvaða tvær fisk­teg­undir er hér um að ræða?

6.  Hvaða bíó­mynd fékk Ósk­arsverð­launin sem besta myndin á Ósk­arsverð­launa­há­tíð­inni fyrr á árinu?

7.  Hvað heitir for­seti Tyrk­lands?

8.  Hvað heitir næst­stærsti gos­hver­inn á Geys­is­svæð­inu, á eftir Geysi sjálfum?

9.  Hvaða hljóm­sveit keppti fyrir Íslands hönd í Eurovision í fyrra?

10.  Hvar í Evrópu er haldin víð­fræg mynd­list­ar­há­tíð á tveggja ára fresti, og er hún kölluð Tví­ær­ing­ur­inn í ... ?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Konan hér að neðan var braut­ryðj­andi á Íslandi, bæði í sinni starfs­grein og í íslenskum stjórn­málum. Hvað hét hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Fálkar.

2.  Í Atlas-fjöllum Norður-Afríku, en Norður-Afríka dugar líka ein og sér.

3.  Egill Skalla­gríms­son.

4.  Á Borg á Mýrum.

5.  Ýsa og lýsa.

6.  Myndin heitir CODA.

7.  Erdogan.

8.  Strokkur.

9.  Daði og Gagna­magnið.

10.  Feneyjum.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd má sjá sprengigos í eyrík­inu Tonga í Kyrra­hafi.

Á neðri mynd­inni er Katrín Thorodd­sen læknir og þing­maður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár