766. spurningaþraut: Danskur kóngur í hátækni?

Fyrri auka­spurning:

Hver á myndinni hér að ofan?

***

Aðal­spurningar:

1.  Hversu margar voru eigin­konur Hinriks áttunda Englands­konungs?

2.  Í hvaða landi er höfuð­borgin Sarajevo?

3.  Hvað heitir íslenska Eurovision-lagið 2022?

4.  Carl Barks var víðfrægur amerískur teiknari sem gerði garðinn frægan við að teikna sögur um ... ?

5.  Hvaða fjörður er stærstur milli Skaga­fjarðar og Skjálf­anda á Norður­landi?

6.  Nafnið á dönskum kóngi frá tíundu öld er nú notað yfir ákveðna „skamm­dræga þráðlausa samskipta­tækni“ sem samnefnt fyrirtæki tók að þróa rétt fyrir aldamótin 2000. Reyndar er það viðurnefni kóngsins sem notað er, en ekki skírnar­nafn hans. Hvað hét þessi kóngur?

7.  Fjórir stærstu bankar heimsins eru kínverskir og ég geri ekki kröfu um að fólk viti hvað þeir heita. En fimmti stærsti banki heims er bandarískur og hvað heitir hann?

8.  Sigurjón M. Egilsson kom á fót laust eftir hrun þjóðmála- og umræðu­þætti á Bylgjunni sem er á dagskrá á sunnu­dögum. Þótt Sigurjón sé horfinn á braut er þátturinn enn á dagskrá. Hver sér núna um hann?

9.  En hvað heitir þátturinn?

10.  Hversu lengi er birta frá sólinni að berast til Jarðar? Tekur það 0,8 sekúndur — 8 sekúndur — 8 mínútur — 80 mínútur?

***

Seinni auka­spurning:

Myndin hér að neðan er tekin þegar þrír rithöfundar voru gerðir heiðursdoktorsar við Háskóla Íslands 2010. Þið fáið stig fyrir að vita nöfn tveggja höfunda, en sérstakt heiðurs­doktora-stig fyrir öll þrjú nöfnin.

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Sex.

2.  Bosníu.

3.  Með hækkandi sól.

4.  Andrés Önd og félaga.

5.  Eyja­fjörður.

6.  Haraldur blátönn. Um er að ræða samskipta­tæknina Bluetooth.

7.  JP Morgan Chase. Stig fæst þótt fólki gleymi „Chase“ en „JP Morgan“ verður að vera!

8.  Kristján Kristjánsson.

9.  Sprengi­sandur.

10.  Átta mínútur. Reyndar aðeins rúmlega 8 mínútur, en við látum það liggja milli hluta hér.

***

Svör við auka­spurningum:

Á efri myndinni er Solla stirða. Óþarft er vita nafn leik­konunnar að þessu sinni.

Á neðri myndinni eru Matthías Johannessen, Álfrún Gunnlaugs­dóttir og Thor Vilhjálmsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár