763. spurningaþraut: Hér koma við sögu Jesúa frá Nasaret, María Magdalena og Till Lindemann

763. spurningaþraut: Hér koma við sögu Jesúa frá Nasaret, María Magdalena og Till Lindemann

Fyrri auka­spurn­ing:

Útlínur hvaða Evr­ópu­lands má sjá hér?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða land vann Eurovision-keppn­ina á dög­unum?

2.  Hvað hét hljóm­sveitin sem keppti fyrir hönd þessa lands?

3.  Hvað nefn­ist sú tón­list­ar­stefna sem sögð er hafa ráðið ríkjum í stærstum hluta Evrópu svona um það bil 1600-1750?

4.  Einn glæsi­leg­asti full­trúi þeirrar tón­list­ar­stefnu var lengi tón­list­ar­stjóri og org­anisti við dóm­kirkj­una í Leipzig. Hann hét ... ?

5.  Árið 1963 fædd­ist í Leipzig tón­list­ar­maður af allt öðru tagi en kirkju­organist­inn. Hann heitir Till Lindem­ann og er söngv­ari í grjót­harðri rokk­hljóm­sveit. Hljóm­sveitin heitir ... hvað?

6.  Í hvaða landi er ann­ars Leipzig?

7.  Árið 2017 var frum­sýnd breska bíó­myndin Mary Magda­lene. Hún fékk aðeins miðl­ungi góða dóma og litla aðsókn þótt hún skart­aði ýmsu hæfi­leika­fólki. Meðal þess sem best þótti við mynd­ina var tón­listin en hana sömdu tvö tón­skáld, sem oft unnu saman á þeim árum, þótt síðan hafi sam­starfi þeirra lokið — af skilj­an­legum ástæðum. Hvað heita þessi tvö kvik­mynda­tón­skáld?

8.  Í þess­ari mynd lék Joaquin Phoenix hlut­verk Jesúa frá Nasaret. Aðeins ári síðar fékk hann Ósk­arsverð­laun fyrir hlut­verk hálf­gerðs minni­poka­manns sem ber heitir Arthur Fleck. Sá verður þó þegar líður á mynd­ina kunnur undir öðru nafni og er þá far­inn að hefna sín á þeim sem hann telur hafa gert á sinn hlut. Hvað nefn­ist Fleck sem sé í mynd­inni?

9.  Í hvaða borg er Buckingham-höll?

10.  Gunnar á Hlíð­ar­enda átti tvo syni, segir Njála. Nefnið að minnsta kosti annan.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða hjón eru þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Úkraína.

2.  Kalush.

3.  Barokk.

4.  Bach.

5.  Ramm­stein.

6.  Þýska­landi.

7.  Hildur Guðna­dóttir og Jóhann Jóhanns­son.

8.  Joker.

9.  London.

10.  Högni og Grani hétu þeir.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Útlín­urnar eru útlínur Finn­lands.

Hjónin eru Mao Zedong og Jiang Qing. Hún var oft kölluð „madam Mao“ og þess vegna dugar í þessu til­felli að svara Mao hjónin, þótt hún hafi ekki borið nafn hans form­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár