762. spurningaþraut: Hér er spurt um 5 lönd í Afríku í aðeins 2 spurningum

762. spurningaþraut: Hér er spurt um 5 lönd í Afríku í aðeins 2 spurningum

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir stúlkan hér að ofan? Myndin er ekki ný af nál­inni.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Þrjú ríki í Afríku heita í raun sama nafn­inu. Til að greina á milli þeirra er eitt þeirra kennt við höf­uð­borg sína, auk nafns­ins sjálfs; annað ríki er kennt við stað­setn­ingu sína á mið­baug, en það þriðja heitir þessu nafni ein­skæru. Og hvaða nafn er það?

2.  En svo eru tvö ríki í Afríku sem heita alveg sama nafn­inu, en greint er á milli þeirra með til­vísun til stjórn­ar­fars­ins — annað er kallað alþýðu­lýð­veldi en hitt ein­fald­lega lýð­veldi. Hvað heita þessi tvö ríki?

3.  Ýmsir hafa búið á Bessa­stöðum. Á árunum 1901-1908 bjó þar bóndi nokkur sem þó er kunn­ari sem stjórn­mála­maður og rit­stjóri áhrifa­mik­ils blaðs sem Þjóð­vilj­inn kall­að­ist. Hvað hét bóndi?

4.  Kona bónda var líka kunn á sinni tíð og kannski ekki síst fyrir að end­ur­vekja hið forna þulu­form í íslenskum kveð­skap. Hvað hét hún?

5.  Í einni kunn­ustu þulu hennar sagði: „Tunglið, tunglið, taktu mig / og berðu mig upp til skýja ...“ og hvernig var svo fram­haldið?

6.  St.Pét­urborg í Rúss­landi gekk undir öðru nafni á árunum 1914-1924. Hvaða nafn var það?

7.  Síðan fékk borgin þriðja nafnið 1924 og kall­að­ist svo til 1991. Á þeim tíma hét borgin ....?

8.  Í mars 1963 sendi hljóm­sveit ein frá sér lagið Please Please Me og öðl­að­ist lagið heil­miklar vin­sældir. Hver var hljóm­sveitin?

9.  Plútó heitir hundur Mikka Mús. Hvernig er háls­bandið hans á lit­inn (að minnsta kosti lang, lang, langoft­ast)?

10.  Hvaða kaup­staður er í vest­ur­átt frá Reykja­vík?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Myndin er úr leik­sýn­ingu frá 1963. Þarna sjást Brynjólfur Jóhann­es­son og Helga Val­týs­dóttir í hlut­verkum sínum. En hver var höf­undur leik­rits­ins?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Gínea. Hinar tvær Gíne­urnar í Afríku heita Gínea-Bissau og Miðbaugs-Gínea.

2.  Kongó.

3.  Skúli Thorodd­sen.

4.  Theódóra Thorodd­sen.

5.  „Hugurinn ber mig hálfa leið / í heim­ana nýja.“

6.  Petr­ograd.

7.  Len­ingrad.

8.  Bítl­arnir.

9.  Grænt.

10.  Sel­tjarn­ar­nes.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Kamala Harris, nú vara­for­seti Banda­ríkj­anna.

Á neðri mynd­inni er sem sagt sena úr Hart í bak eftir Jökul Jak­obs­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár