739. spurningaþraut: Ailurophobia og fleira

739. spurningaþraut: Ailurophobia og fleira

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Allt (eða flest) er hey í ... hverju?

2.  Ail­uroph­obia er lat­neskt fræði­heiti yfir til­hæfu­lausan og ofsa­legan ótta við til­tekið mein­leys­is­legt hús­dýr sem flestum er nú bara vel við. Hvaða dýr er það?

3.  Hver mál­aði mál­verkið fræga, Mónu Lísu?

4.  Hvaða ár varð kjarn­orku­slysið í Térnóbyl?

5.  Hvar var Alex­ander mikli upp­haf­lega kon­ungur?

6.  Hvaða efni eru var­úlfar sagðir ótt­ast?

7.  Hvaða kona fékk Ósk­arsverð­laun fyrir leik­stjórn fyrr á þessu ári? 

8.  Hvaða fjall má sjá milli Akra­fjalls og Esju frá Reykja­vík?

9.  Í fyrri heims­styrj­öld­inni hófu Bretar að þróa nýtt vopn sem átti að rjúfa kyrr­stöðu skot­graf­anna á vest­ur­víg­stöðv­unum. Til að njósn­arar Þjóð­verja kæmust síður á snoðir um þróun þessa vopns var ævin­lega not­ast við dul­nefni í skeyta­send­ingum Breta á milli, og svo fór að dul­nefnið fest­ist við vopnið í enskri tungu — og það er enn notað um græj­una. Hvaða enska heiti er hér um að ræða?

10.  Íslend­ingar fóru aðra leið við að finna nafn á vopn þetta og kalla það ... hvað? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hljóm­sveitin hér að neðan er orðin rúm­lega 40 ára gömul og hefur gengið í gegnum ótal manna­breyt­ingar svo karl­inn annar frá hægri er sá eini sem hefur verið í henni frá upp­hafi. Hvað heitir hljóm­sveitin?

**

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  ... harð­indum.

2.  Köttur.

3.  Leonardo da Vinci.

4.  1986.

5.  Makedóníu.

6.  Silfur.

7.  Jane Campion.

8.  Skarðs­heiði.

9.  Tank.

10.  Skrið­dreka.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Chelsea Clinton.

Á neðri mynd­inni er hljóm­sveitin The Cure.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár