738. spurningaþraut: Af hverju er verið að spyrja um þessa jurt?

738. spurningaþraut: Af hverju er verið að spyrja um þessa jurt?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvers vegna er þessi teg­und af svona eyði­merk­ur­jurt kunn­ari en aðrar svip­aðar?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Reykja­vík, Kópa­vogur, Hafn­ar­fjörður, Reykja­nes­bær og Akureyri eru fimm fjöl­menn­ustu þétt­býl­is­staðir á Íslandi. Hver er í sjötta sæti?

2.  Hvar fædd­ist Napóleon Bónap­arte?

3.  Hebreska og arab­íska (og fleiri mál) eiga það sam­eig­in­legt að vera af til­tek­inni tungu­mála­rót. Hvað nefn­ast þessi mál?

4.  Í Evr­ópu­sam­band­inu er aðeins eitt tungu­mál af þess­ari teg­und í hópi opin­berra mála sam­bands­ins. Hvaða tungu­mál er það?

5.  Hvað er átt við með orð­inu fjalla­brúða?

6.  Ásmundur Frið­riks­son er á þingi fyrir ... hvaða flokk?

7.  Ásmundur var einu sinni bæj­ar­stjóri. Í hvaða sveit­ar­fé­lagi?

8.  Hvar í manns­lík­am­anum er að finna fyr­ir­brigði sem heitir á fræði­málum „medulla oblon­gata“? Og þau sem vita hvað fyr­ir­brigðið heitir á íslensku fá lár­við­ar­stig!

9.  Ariana Grande, hvað fæst hún við í líf­inu?

10.  Hversu margar teg­undir af fílum þekkj­ast nú á Jörðinni?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða kirkju­staður er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Garðabær.

2.  Á Korsíku.

3.  Semitísk.

4.  Malt­neska.

5.  Það er jurt sem vex fyrir norðan.

6.  Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

7.  Garði.

8.  Í heil­anum. Þetta heitir mænu­kylfa á íslensku.

9.  Hún er söng­kona.

10.  Þrjár. Fílar í Afríku skipt­ast í tvær teg­undir, gresju­fíl og skóg­ar­fíl. Svo er Asíu­fíll­inn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Sú fyrri:

Hinn rót­sterki drykkur tekíla er unn­inn úr þess­ari teg­und af eyði­merk­ur­lilju.

Sú seinni:

Kirkju­stað­ur­inn heitir Hólar og er í Hjalta­dal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár