737. spurningaþraut: Mélkisulegur kóngur af Jerúsalem kannski?

737. spurningaþraut: Mélkisulegur kóngur af Jerúsalem kannski?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða ball­ett er (næstum áreið­an­lega) verið að flytja þarna?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Og þá er spurn­ingin, hver samdi tón­list­ina við þann ball­ett?

2.  Á hvaða tímum mátti finna hinn svo­kall­aða „kon­ung af Jer­úsalem“?

3.  Hvað er biðu­kolla?

4.  En hvað þýðir að vera mél­kisu­legur?

5.  Leið­togar margra stríðs­þjóð­anna í síð­ari heims­styrj­öld voru upp­gjafa lista­menn. Hitler til dæmis, hann hafði á sínum yngri árum ... skapað hvernig lista­verk?

6.  En Stalín, hvað fékkst hann við í æsku?

7.  Churchill var margt til lista lagt, hann skrif­aði eina skáld­sögu í æsku en á miðjum aldri tók hann að fást við ... hvaða lista­verk?

8.  Einn stríðs­leið­togi í við­bót gaf út skáld­sög­una Ástkona kard­ínál­ans. Hver skyldi það hafa verið?

9.  Í hvaða heims­álfu er ríkið Brunei?

10.  Sally Hemings hét kona ein. Hún var að einum fjórða að afrískum upp­runa en þremur fjórðu af evr­ópskum upp­runa. Það skipti máli í hennar til­felli því vegna hins afríska upp­runa var hún í þræl­dómi alla ævina. Lengst af hún í eigu karl­manns sem var ann­ál­aður gáfu­maður, skör­ungur og stjórn­vitr­ingur. Hann hafði Sally að ást­konu sinni og gerði henni börn. Hver var hann?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er hér í and­ar­slitr­unum?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Tjækov­skí.

2.  Kross­fara­tímunum.

3. Tún­fíf­ill á síð­asta skeiði ævinnar.

4.  Ræf­ils­legur, lít­il­fjör­legur, jafn­vel pemp­íu­legur

5.  Málverk.

6.  Ljóð.

7.  Málverk.

8.  Mus­sol­ini.

9.  Asíu.

10.  Thomas Jeffer­son for­seti Banda­ríkj­anna.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin sýnir senu úr Svana­vatn­inu.

Neðri myndin sýnir Nelson flota­for­ingja rétt áður en hann dó á skipi sínu Victory.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár