736. spurningakeppni: Um hvað fjölluðu umdeildar skýrslur 1948 og 1953?

736. spurningakeppni: Um hvað fjölluðu umdeildar skýrslur 1948 og 1953?

Fyrri auka­spurn­ing:

Mál­verkið hér að ofan er frá 1949 og það mál­aði breskur mál­ari sem hét ...? Mál­verkið er raunar eins konar til­brigði við mun eldra mál­verk. Þeir sem vita hver mál­aði það eldra verk, þeir mega sæma sig lár­við­ar­stigi með eik­ar­laufum og krossi, því þetta er mjög erfið spurn­ing.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða banda­ríski geim­leið­angur skil­aði mönnum á tunglið í fyrsta sinn?

2.  Og hver var fyrsti mað­ur­inn sem steig fæti á tunglið?

3.  Hver sér um hlað­varpið Eigin konur, sem nú er hér á Stund­inni?

4.  Við rætur hvaða fjall­garðs er Téténía?

5.  Kinsey-skýrsl­urnar svo­nefndu komu út í tveim bókum í Banda­ríkj­unum 1948 og 1953 og vöktu gríð­ar­lega athygli um heim allan. Þær voru og eru umdeildar en óum­deil­an­lega merk braut­ryðj­enda­verk á sínu sviði. Um hvað fjalla þær?

6.  Hver er fyrsta konan sem var vígð til prests á Íslandi?

7.  Um 20 milljón manna þjóð í Mið­aust­ur­löndum hefur verið nefnd fjöl­menn­asta þjóð heims­ins sem ekki á sitt eigið sjálf­stæða ríki. Hvaða þjóð er það?

8.  Hver gaf út spennu­sög­una Svörtu­loft árið 2009?

9.  Svörtu­loft eru örnefni á að minnsta kosti 14 stöðum á land­inu. Þekkt­ustu Svörtu­loftin eru sjáv­ar­hamrar, um fjög­urra km langir, hrika­legir til­sýndar og kol­svartir eins og nafnið ber með sér. Þar hafa oft farist skip. Hvar eru þessi Svörtu­loft?

10.  Tiltekið hús í Reykja­vík hefur líka stundum verið kallað Svörtu­loft. Hvaða mik­il­væga stofnun hefur aðsetur í því húsi?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir sú amer­íska sjón­varps­s­ería sem skjá­skotið hér að neðan er úr?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Appollo 11.

2.  Arm­strong.

3.  Edda Falak.

4.  Kákasus-fjalla.

5.  Kynlíf.

6.  Auður Eir.

7.  Kúrdar.

8.  Arnaldur Ind­riða­son.

9.  Á Snæ­fells­nesi.

10.  Seðla­bank­inn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Mál­verkið á efri mynd­inni mál­aði Francis Bacon. Það var sniðið eftir mál­verki af Innocentiusi páfa 10. eftir Velázquez.

Mynd Velázquez til vinstri, mynd Bacons til hægri.

Skjá­skotið á neðri mynd er úr South Park.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár