735. spurningaþraut: Hvað var svona merkilegt við Bob?

735. spurningaþraut: Hvað var svona merkilegt við Bob?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér má sjá skjá­skot úr bíó­mynd frá 2010. Hvað heitir myndin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Og þá í fram­haldi af því, hvað heitir leik­konan sem á mynd­inni sést, svona fremur þung­búin?

2.  Hvaða katt­ar­dýr er stærst og þyngst?

3.  Í hvaða land eru Jaguar-bílar upp­runnir?

4.  Einn af jöklum Íslands var einu sinni nefndur Arn­ar­fells­jök­ull en hann var svo skírður upp á nýtt og fengið heiti eftir bæ einum í Skaga­firði. Hvað heitir Arn­ar­fells­jök­ull núna?

5.  Í hvaða heims­álfu er landið Austur-Tímor?

6.  Hvaða lið hefur oft­ast orðið Íslands­meist­ari í körfu­bolta karla?

7.  Í júlí 1979 skall felli­byl­ur­inn Bob á strönd Louisiana-ríkis í Banda­ríkj­unum og olli þar tölu­verðum skaða. Ekki er þó vitað um nema eitt banaslys af völdum Bobs. Miðað við stærri felli­bylji var Bob því ekki mjög sögu­legur en hann á þó fastan sess í sög­unni af ákveð­inni ástæðu. Hver er hún?

8.  Ólöf Helga Adolfs­dóttir er fyrr­ver­andi vara­for­maður í félagi einu. Hvaða félagi?

9.  „Hest! Hest! Mín kon­ungs­krúna fyrir hest!“ hrópar kóngur einn á flótta undan óvinum sínum eftir að hafa tapað orr­ustu. Hvaða kóngur var það?

10.  Þessi lína er raunar úr frægu leik­riti um kóng­inn sem ... hver ... skrif­aði?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða stór­borg sést hér úr lofti? Norður vísar upp eins og á venju­legum kortum.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Natalie Portman.

2.  Tígris­dýr.

3.  Englandi, Bret­landi.

4.  Hofs­jök­ull.

5.  Asíu.

6.  KR.

7.  Fyrsti felli­byll­ur­inn sem opin­ber­lega var nefndur karl­manns­nafni.

8.  Eflingu.

9.  Ríkarður 3.

10.  Shakespe­are.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er skjá­skot úr mynd­inni Black Swan.

Á neðri mynd­inni er Barcelona.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár