727. spurningaþraut: Hér er lárviðarstig í boði fyrir dýrafræðispurningu!

727. spurningaþraut: Hér er lárviðarstig í boði fyrir dýrafræðispurningu!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvar er myndin hér að ofan tekin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Milli hvaða landa er Ber­ings­sund?

2.  Hverrar þjóðar var Bering sá sem sundið er kennt við?

3.  Fyrir hvaða flokk situr Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir í borg­ar­stjórn Reykja­víkur?

4.  Hvað heita fjöllin tvö við mynni Hval­fjarðar?

5.  Hver skrifar reglu­lega barna­bækur um hana Fíasól? 

6.  Á árunum 1960-75 átti til­tek­inn erlendur reyfara­höf­undur oftar en ekki sölu­hæstu bæk­urnar á Íslandi fyrir hver jól. Hvað hét hann?

7.  Hvað heitir kýrin sem stundum birt­ist í Andr­és­blöð­unum og er mikil vin­kona Minní Músar?

8.  Í hvaða kirkju í Reykja­vík þjónar séra Davíð Þór Jónsson?

9.  Aðeins einn Íslend­ingur spilar nú í ensku úrvals­deild­inni. Hvað heitir hann?

10.  Og fyrir hvaða lið spilar hann?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða dýr er þetta? Almennt teg­und­ar­heiti dugar en þeir sem vita nákvæm­lega af hvaða teg­und dýrið er — það er að segja á íslensku — þeir fá lár­við­ar­stig.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Milli Rúss­lands og Banda­ríkj­anna.

2.  Danskur.

3.  Sós­í­alista­flokk­inn.

4.  Esjan og Akra­fjall.

5.  Kristín Helga.

6.  Alistair MacLean.

7.  Klara­bella.

Klara­bella

8.  Laug­ar­nes­kirkju.

9.  Jóhann Berg.

10.  Burnley.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er kastal­inn í Edinborg í Skotlandi.

Á neðri mynd­inni er kattal­emúr. Lemúr dugar fyrir stigi, en kattal­emúr fyrir lár­við­ar­stigi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár