718. spurningaþraut: Segulfjörður er ekki til, en er hann samt til?

718. spurningaþraut: Segulfjörður er ekki til, en er hann samt til?

Fyrri auka­spurn­ing:

Fjöl­skylda ein átti sér það skjald­ar­merki sem sést hér að ofan. Þangað til fyrir rúmum hund­rað árum var fjöl­skyldan á allra vörum enda var hún gríð­ar­lega valda­mikil þegar best lét fyrir henni, en ekki þótti hún alltaf fara mjög vel með völd sín. Heilt ríki, og það stór­veldi, not­aði þetta skjald­ar­merki fjöl­skyld­unnar sem sitt tákn, lítið breytt, og eftir nokk­urra ára­tuga hlé, þá hefur skjald­ar­merkið raunar verið tekin aftur í notkun þar. Hver var fjöl­skyldan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Einn helsti frétta­maður Rík­is­út­varps­ins — útvarps­megin — lét nýlega af störfum fyrir ald­urs sakir en hann hafði setið við hljóð­nem­ann í ára­tugi og þótti í ess­inu sínu þegar eld­gos eða aðra stór­við­burði bar að dyrum. Hvað heitir hann?

2.  Í hvaða landi er borg Lens?

3.  En í hvaða heims­álfu er ríkið Paragvæ?

4.  Róm­ar­sátt­mál­inn svo­nefndi frá 1957 er yfir­leitt tal­inn upp­haf hvers?

5.  Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir fyrrum for­sæt­is­ráð­herra var tví­vegis for­maður verka­lýðs­fé­lags. Hvaða félag var það?

6.  Hvaða ár lét Jóhanna af störfum sem for­sæt­is­ráð­herra?

7.  Hver leik­stýrði hinni vin­sælu kvik­mynd Avatar árið 2009?

8.  Kona nokkur vestur í Banda­ríkj­unum mun brátt hefja nýtt starf sem Hæsta­rétt­ar­dóm­ari þar í landi. Hvað heitir hún? 

9.  Og að hvaða leyti er hún braut­ryðj­andi við þann Hæsta­rétt?

10.  Seg­ul­fjörður er víst hvergi til á Íslandi. En þessi fjörður hefur samt verið að verða til á vissan hátt á und­an­förnum árum með afar fjöl­skrúð­ugu og lit­ríku mann­lífi. Hver er að búa hann til?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Úr hvaða sjón­varps­s­eríu er þetta skjá­skot?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Broddi Brodda­son.

2.  Frakk­landi.

3.  Suður-Ameríku.

4.  Evr­ópu­sam­bands­ins.

5.  Flug­freyju­fé­lags­ins.

6.  2013.

7.  James Cameron.

8.  Ketanji Brown Jackson. Í þetta sinn er leyfi­legt að nefna hvort heldur skírn­ar­nafn hennar eða eft­ir­nafn.

9.  Hún er fyrsta svarta konan í rétt­inum.

10.  Hall­grímur Helgason.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd mátti líta skjald­ar­merki Romanov-fjöl­skyld­unnar í Rúss­landi.

Á neðri mynd má sjá Írisi Tönju leikkonu í hlut­verki sínu í Kötlu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár