717. spurningaþraut: Hér snúast þrjár spurningar um 13. apríl

717. spurningaþraut: Hér snúast þrjár spurningar um 13. apríl

Fyrri auka­spurn­ingin:

Hver er konan sem þarna reykir?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Íslenskur tón­list­ar­maður hefur í mörg ár verið að reyna að sækja rétt sinn gegn útlenskum mús­í­k­ant sem þeim íslenska finnst að hafi stolið lagi frá sér og gefið út undir sínu nafni. Hvað heitir íslenski tón­list­ar­mað­ur­inn?

2.  En hvað heitir lagið sem hann telur — auð­heyri­lega með miklum rétti — að hafi verið stolið frá sér?

3. Á þessum degi árið 1964 fékk svartur leik­ari í fyrsta Ósk­arsverð­laun fyrir leik í aðal­hlut­verki í kvik­mynd. Hvað hét hann?

4.  Hver skrif­aði leik­ritið Beðið eftir Godot? — en í dag er einmitt afmæl­is­dagur þess ágæta manns.

5.  Hver er fjöl­menn­asta borgin í Bayern, einu fylkja Þýska­lands?

6.  Fyrir hvað er Rosa Parks fræg?

7.  Hver var síð­astur eða síð­ust af ætt Ptólemæja frá Makedóníu til að ríkja yfir sjálf­stæðu ríki?

8.  Í hvaða landi er borgin Tijuana?

9.  Hversu margar Michelin-stjörnur geta veit­inga­hús fengið?

10.  Þann 13. apríl 1204 lögðu kross­farar hinnar svo­nefndu 4. kross­ferðar undir sig borg eina og héldu henni síðan í nokkra ára­tugi. Með til­liti til þess að yfir­lýst mark­mið kross­fara var að verja kristna menn í Landinu helga fyrir múslimum, þá þótti þetta upp­á­tæki þeirra 1204 bæði und­ar­legt og mis­ráðið, en þeir kipptu með þessu stoð­unum undan veldi borg­ar­innar. Hvaða borg var þetta?  

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi karl á afmæli í dag. Hvað heitir hann?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Jóhann Helgason.

2.  Söknuður.

3.  Poitier.

4.  Beckett.

5.  München.

6.  Að standa ekki upp fyrir hvítum far­þega í stræt­is­vagni en sjálf var hún svört.

7.  Kleópatra.

8.  Mexíkó.

9.  Þrjár.

10.  Mikli­garður, Kon­stant­ínópel.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Sigourney Weaver kvik­mynda­stjarna.

Á neðri mynd­inni er skák­meist­ar­inn Kasparov.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár