Bókin um „svikara“ Önnu Frank dregin til baka í Hollandi með afsökunarbeiðni

Tilkynnt var með lúðra­þyt og söng á dög­unum að höf­undar nýrrar bókar hefðu fundið þann sem sveik Önnu Frank og fjöl­skyldu hennar í hendur þýskra nas­ista. Nú hefur hol­lenskur útgef­andi bók­ar­innar beðist afsök­unar á öllu saman

Bókin um „svikara“ Önnu Frank dregin til baka í Hollandi með afsökunarbeiðni

Sú flugu­fregn fór um heim­inn á dög­unum að höf­undar nýrrar bókar og rann­sókn­ar­hópur að baki bók­inni, hefði kom­ist að því hvaða ill­menni sveik Önnu Frank og fjöl­skyldu hennar í hendur þýskra nas­ista 1944 og end­aði með því að nær fjöl­skyldan var drepin í útrým­ing­ar­búðum.

Svik­ar­inn átti að hafa verið Gyðingur sem kom upp um felu­stað Frank-fjöl­skyld­unnar til þess að sleppa sjálfur úr klóm nas­ista.

Ég skal við­ur­kenna að mér fannst vís­bend­ingar þær sem rann­sókn­ar­hóp­ur­inn bar fram gegn „svik­ar­anum“ vera afar fáfengi­legar, væg­ast sagt, og sér­fræð­ingar á þessu sviði voru enda fljótir að benda á það sama. Í fyrsta lagi hafði athyglin áður beinst að mann­inum sem rann­sókn­ar­hóp­ur­inn benti á og í öðru lagi benti ekk­ert til sektar hans nema einn miði sem fannst eftir stríðið.

Það virt­ist ein­fald­lega ósæmi­legt að ætla að slá fastri sekt manns­ins á svo næf­ur­þunnum grunni.

Hér er grein sem ég skrif­aði um þetta á dög­unum.

Nú hefur útgef­andi bók­ar­innar í Hollandi, Ambo Anthos, beðist afsök­unar á að hafa gefið út þessa bók, enda þurfi kenn­ing rann­sókn­ar­hóps­ins aug­ljós­lega mun meiri rann­sóknar við.

Útgef­and­inn hefur ákveðið að hætta sölu hol­lenskrar þýð­ingar bók­ar­innar, og við­ur­kennir að hafa látið hríf­ast með æsingi hinnar alþjóð­legu útgáfu og að hafa ekki skoðað bók­ina og vinnu­brögð höf­und­anna af nægi­lega gagn­rýnum huga.

Þarf­laust er að taka fram að í Hollandi þekkja menn auð­vitað betur til alls þess sem snertir Önnu Frank en í öðrum löndum. Að þetta ger­ist í Hollandi er því mikið áfall fyrir bók­ar­höf­und og rann­sókn­ar­hóp.

Hið breska Guardian hefur haft sam­band við alþjóð­lega útgáfu­for­lagið, hið banda­ríska HarperCollins, sem gæti setið uppi með heil­mikla skömm af bók­inni, sem virð­ist einkar hroð­virkn­is­lega unnin, þótt aðstand­endur stæri sig af því að hafa unnið sleitu­laust að rann­sókn sinni í sex ár með nýj­ustu tækni. Útgáfu­fyr­ir­tækið hefur ekki svarað fyr­ir­spurnum.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár