Mikil reiði meðal kvenna í stétt kúabænda vegna Ara Edwald

Reiði og þrýst­ingur kúa­bænda, einkum kvenna, vóg þungt í þeirri ákvörðun Íseyjar útflutn­ings að segja Ara Edwald upp störfum vegna frá­sagna um meint kyn­ferð­is­brot hans.

Mikil reiði meðal kvenna í stétt kúabænda vegna Ara Edwald
Vildu láta reka Ara Konur í stétt kúa­bænda lýstu mik­illi reiði vegna máls Ara Edwald og vildu að hann yrði rek­inn frá Ísey í stað þess að hann færi í leyfi.

Töluverð óánægja er meðal kúa­bænda, og þá einkum meðal kvenna í stétt­inni, með vinnu­brögð stjórnar Íseyjar útflutn­ings vegna máls Ara Edwalds, sem ásak­aður hefur verið um að hafa brotið gegn konu í félagi við þrjá aðra menn. Sú óánægja og þrýst­ingur kann að hafa valdið því að Ara Edwald var sagt upp störfum sem fram­kvæmda­stjóra Íseyjar í gær.

Stundin greindi frá því 6. jan­úar síð­ast­lið­inn að Ari væri kom­inn í leyfi frá störfum sem fram­kvæmda­stjóri Íseyjar, syst­ur­fé­lags Mjólk­ur­sam­söl­unnar. Samkvæmt stjórn­ar­for­manni Íseyjar, Elínar Mar­grétar Stef­áns­dóttur, óskaði Ari sjálfur eftir að fara í umrætt leyfi. Ari er meðal fjög­urra manna sem Vítalía Lazareva hefur sakað um að hafa gengið yfir mörk sín í heitum potti í sum­ar­bú­staða­ferð í des­em­ber árið 2020.

„Sem mjólk­ur­fram­leið­endur krefj­umst við þess að Ari Edwald verði lát­inn víkja frá öllum störfum hjá okkar fyr­ir­tækjum“
Guðný Helga Björns­dóttir og Jóhann Magn­ús­son
kúa­bændur

Síð­ast­lið­inn laug­ar­dag settu kúa­bænd­urnir á Bessa­stöðum á Hegg­staða­nesi í Húna­þingi vestra, þau Jóhann Magn­ús­son og Guðný Helga Björns­dóttir, inn yfir­lýs­ingu á Facebook-síðu kúa­bænda þar sem þess var kraf­ist að Ari yrði lát­inn víkja. „Við for­dæmum alla sem við­hafa kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi. Sem mjólk­ur­fram­leið­endur krefj­umst við þess að Ari Edwald verði lát­inn víkja frá öllum störfum hjá okkar fyr­ir­tækjum, ekki bara í leyfi heldur til fram­búðar. Þó svo að ekki liggi fyrir kæra þá trúum við stað­fast­lega orðum Vítalíu, eftir að hafa hlustað á við­tal Eddu Falak við hana. Við dáumst að hug­rekki hennar við að opin­bera ömur­lega fram­komu ást­manns hennar og drottn­un­ar­legra félaga hans,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni. Guðný Helga er fyrr­ver­andi vara­for­maður Bænda­sam­taka Íslands og einnig fyrr­ver­andi vara­for­maður Lands­sam­bands kúa­bænda.

Vissu af málinu þegar í október

Yfir­lýs­ingin hlaut miklar und­ir­tektir og var dreift víða. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var mjög þungt hljóð í kúa­bændum vegna máls Ara en einnig vegna við­bragðs­leysis for­svars­manna Íseyjar. Einkum var þungt hljóð í konum innan stétt­ar­innar sem munu hafa verið í tölu­verðum sam­skiptum sín á milli vegna máls­ins. Samkvæmt sömu heim­ildum mun sú óánægja og þrýst­ingur hafa vegið þungt í því að stjórn Íseyjar brást við með því að segja Ara upp störfum.

Vítalía Lazareva birti á Instagram reikn­ingi sínum í októ­ber síð­ast­liðnum frá­sagnir af því hvernig gengið var yfir mörk hennar og hún beitt kyn­ferð­is­legu ofbeldi í umræddri sum­ar­bú­staða­ferð. Strax þá var stjórn Íseyjar kunn­ugt um lýs­ingar Vítalíu, eftir því sem kemur fram í bréfi sem sent var á alla félags­menn Auðhumlu, sam­vinnu­fé­lags­ins sem á 80 pró­senta hlut í Mjólk­ur­sam­söl­unni. Samkvæmt því sem segir í bréf­inu var málið strax tekið alvar­lega „vegna þess mögu­leika að upp­lýs­ing­arnar væru réttar, og hefur stjórn félags­ins fundað oft um málið, bæði með fram­kvæmda­stjóra og án hans. Málið var enn til með­ferðar í stjórn í síð­ustu viku þegar vatna­skilin urðu.“

Bréf Íseyjar útflutn­ings til bændaStjórn Íseyjar fékk upp­lýs­ingar um ásak­anir á hendur Ara Edwald þegar í októ­ber á síð­asta ári en aðhafð­ist ekki fyrr en í síð­ustu viku.

Kúa­bændur sem Stundin hefur rætt við furða sig á því að ekki hafi verið gripið til aðgerða fyrr og Ari sendur í leyfi frá störfum í ljósi þessa. Það hafi ekki verið fyrr en nú, eftir að Vítalía sagði sögu sína í hlað­varp­inu Eigin konur og fjöl­miðlar hófu umfjöllun um málið, að ákveðið var að Ari færi í leyfi. Það gagn­rýna bændur og sömu­leiðis að stjórnin hafi ekki sagt Ara upp störfum þegar málið var komið á allra vit­orð, líkt og stjórn almenn­ings­hluta­fé­lags­ins Festar gerði í máli Þórðar Más Jóhann­es­sonar.

Þórður Már er einn þeirra fjög­urra manna sem var í umræddri sum­ar­bú­staða­ferð. Stjórn Festar tók ákvörðun um það 6. jan­úar síð­ast­lið­inn að víkja honum frá sem stjórn­ar­for­manni félags­ins, dag­inn eftir að við­talið við Vítalíu birt­ist. Fyrr sama dag hafði Hregg­viður Jónsson, aðal­eig­andi og stjórn­ar­for­maður Veritas Capital, vikið frá sem stjórn­ar­for­maður en Hregg­viður var einnig í umræddri ferð. Fjórði mað­ur­inn er Arnar Grant, þáver­andi ást­maður Vítalíu.

Stundin hefur gert ítrek­aðar til­raunir til að ná sam­bandi við stjórn­ar­menn Íseyjar útflutn­ings í dag, þau Elínu Margréti Stef­áns­dóttur for­mann, Ágúst Guð­jóns­son og Sigurjón Rúnar Rafnsson, til að fá frek­ari skýr­ingar á brott­vikn­ingu Ara. Ekki hefur náðst í neitt þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thorunn Ravn skrifaði
    Mikið er ég sammála því sem Páll Bragason segir hér ! Stjórnin þarf að víkja öll.
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Bændur takk fyrir að standa fastir fyrir gegn þessu siðleisi sem er óframkvænan legt nema á sterkum hugbreitandi efnum.
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Kúabændur ættu að skipta út allri stjórn MS. Það kom fram hjá stjórnarformanni Íseyjar, að stjórnin vissi af þessu í haust, en ákvað að bíða og sjá hvort þetta mætti afgreiða sem orðróm, sem liði hjá.
    0
  • Anna Óskarsdóttir skrifaði
    Ég vildi sjá lífeyrissjóðina bregðast jafn einarðlega við
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár