Auðna Tótu og Tomma í 20 þúsund daga og nætur

Þegar fór að líða að gull­brúð­kaupi Tómasar Jóns­sonar, ljós­mynd­ara og graf­ísks hönn­uðar, og Þórunnar Elísa­betar lista­konu fór Tómas í gegnum mynda­safn lífs þeirra og úr varð bók sem er mynd­ræn frá­sögn um sam­lífi sam­lyndra hjóna í hálfa öld en Tómas hefur myndað Þórunni og lista­verk hennar í rúm 50 ár. Í spjalli á heim­ili þeirra þar sem boðið var upp á jurtate með bragð­miklu blóð­bergi sögðu Tommi og Tóta ást­ar­sög­una sem er leidd áfram af vin­áttu og trausti, hlýju og húmor, sköp­un­ar­krafti og músík.

Auðna Tótu og Tomma í 20 þúsund daga og nætur
,,Við leyfum hvort öðru að vera nákvæm­lega eins og við erum því að þar er mýktin og þar er virð­ingin.” Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég vakna glöð og þakk­lát á hverjum degi. Ég vakna til minnar ástríðu. Hún er mín auðna,“ segir Tóta um leið og hún bíður mér sæti við ákaf­lega fal­legt borð­stofu­borð í íbúð­inni þeirra í Mið­stræti í Reykja­vík. Íbúðin, sem er í húsi sem byggt var fyrir 117 árum, er ævin­týri lík­ust, hvert sem litið er má sjá ein­staka antík­muni og lista­verk og þótt and­rúms­loftið sé afar afslappað er dálítið erfitt að halda fókus og ein­beita sér að því að hlusta á sög­urnar því augun vilja ekki láta trufla sig meðan þau taka inn alla feg­urð­ina. „Við erum knúin áfram af eigin sköp­un­ar­krafti og tón­list ann­arra og mús­íkin hefur verið okkar besti ferða­fé­lagi frá því við vöng­uðum fyrst á balli í Mennta­skól­anum á Akureyri í nóv­em­ber árið 1968,“ segir Tommi og mér tekst að beina aug­unum frá lista­verk­unum og antík­munum og að bun­unni sem rennur úr tekönn­unni þegar hann hellir jurta­tei …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár