Icelandair í Pandóruskjölunum: „Þetta var bara allt eðlilegt“

Fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri Icelandair, Halldór Vil­hjálms­son, segir ekk­ert athuga­vert við að Icelandair hafi not­ast við fyr­ir­tæki í skatta­skjól­inu Tortólu til að kaupa Boeing-þotur á sínum tímum. Upp­lýs­ing­arnar koma fram í Pand­óru­skjöl­unum svoköll­uðu.

Icelandair í Pandóruskjölunum: „Þetta var bara allt eðlilegt“
Keyptu Boeing vélar í skatta­skjól Icelandair keypti Boeing-vélar til félags í skatta­skjóli árið 2004 í gegnum dótt­ur­fé­lag. Um svipað leyti keypti félagið Boeing-þotur til Icelandair og var greint frá þeim við­skiptum opin­ber­lega. For­svars­menn Icelandair, meðal ann­ars Halldór Vil­hjálms­son lengst til vinstri, sjást hér með full­trúm Boeing. Mynd: JIM Smart

Halldór Vil­hjálms­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri Icelandair, segir ekk­ert athuga­vert við að félagið hafi not­ast við fyr­ir­tæki í skatta­skjól­inu Tortóla til að kaupa Boeing-þotur í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt. Upp­lýs­ingar um við­skiptin, sem áttu sér stað árið 2004, koma fram í Pand­óru­skjöl­unum svoköll­uðu. „Það eru 16 ár síðan ég hætti þarna og þetta gerð­ist löngu áður en ég hætti. Þetta var bara allt eðli­legt og við vorum í sam­starfi um þetta sem minni­hluta­eig­endur,“ segir Halldór. „Það var ekk­ert óeðli­legt við þetta. Það hefur aldrei verið neitt óeðli­legt við það að flug­véla­við­skipti séu gerð svona stundum,“ segir Halldór.

Eins og Stundin greindi frá fyrir skömmu þá keypti fyr­ir­tæki í skatta­skjól­inu Tortóla, sem var í eigu dótt­ur­fé­lags flug­fé­lags­ins Icelandair, þrjár Boeing-þotur með lánum frá Íslands­banka, síðar Glitni árið 2004. Tortóla­fé­lagið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Pandóruskjölin

AfhjúpunPandóruskjölin

Aflands­hýs­ing í aflands­fé­lagi hýsir klám og nýnas­ista­á­róður á Íslandi

Íslend­ingur búsettur í Taílandi er pott­ur­inn og pannan í rekstri umdeilds vef­hýs­ing­ar­fyr­ir­tækis sem gerir út á tján­ing­ar­frels­is­á­kvæði íslenskra laga. Klám, nýnas­ista­á­róður og nafn­laust níð er hýst á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. „Ég hef ekk­ert að fela,“ segir mað­ur­inn, sem er einn þeirra sem afhjúpaðir eru í Pand­óru­skjöl­unum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár