Jón segir að verið sé að færa eignarhaldsfélag fjölskyldunnar frá Tortóla til Hong Kong

Jón Ólafsson, fjár­festir og stofn­andi vatns­verk­smiðj­unnar Icelandic Glacial í Ölfusi, segir að brátt muni hann og fjöl­skylda ekki eiga félag á Tortóla. Hann segir að hann hafi hætt að nota Tortóla­fé­lög eftir að hann lenti í skatta­máli við íslenska skatt­inn sem var vísað frá á end­anum.

Jón segir að verið sé að færa eignarhaldsfélag fjölskyldunnar frá Tortóla til Hong Kong
10 ára vera á Tortólu senn á enda segir Jón Jón Ólafsson segir að 10 ára notkun á Tortóla­fé­lag­inu Baraka Invest­ments Limited til að halda utan um eign­ar­hluti fjöl­skyldu hans í vatns­verk­smiðj­unni í Ölfusi endi brátt.

Eign­ar­haldið á vatns­verk­smiðj­unni í Ölfusi, Icelandic Glacial, sem Jón Ólafsson fjár­festir hefur byggt, er í gegnum Tortóla­fé­lag sem sonur hans, Friðrik Ólafsson, er skráður fyrir. Þetta kemur fram í gögnum í Pand­óru­skjöl­unum svoköll­uðu.

Tortóla­fé­lagið heitir Barak Invest­ment Ltd. og var stofnað árið 2011. Jón og börn hans þrjú, Kristján, Katrín og áður­nefndur Friðrik, áttu um tíma öll hluta­bréf í Tortóla­fé­lag­inu. Árið 2016 eign­að­ist Friðrik svo öll bréfin í því, sam­kvæmt und­ir­rit­uðum gögnum sem er að finna í Pand­óru­skjöl­unum. Þetta félag á 39 pró­senta hlut í vatns­verk­smiðj­unni í Ölfusi sem Jón Ólafsson hefur verið kenndur við síð­ast­lið­inn ára­tug.

Pand­óru­skjölin sýna umtals­verð umsvif Jóns Ólafs­sonar og fjöl­skyldu við skatta­skjólið Tortóla. Slík tengsl Jóns Ólafs­sonar hafa raunar margoft áður komið fram í fjöl­miðlum og hefur hann svarað fyrir þau opin­ber­lega. Pand­óru­skjölin eru því bara enn eitt dæmið. 

Bréfið …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Pandóruskjölin

Aflandshýsing í aflandsfélagi hýsir klám og nýnasistaáróður á Íslandi
AfhjúpunPandóruskjölin

Aflands­hýs­ing í aflands­fé­lagi hýsir klám og nýnas­ista­á­róður á Íslandi

Íslend­ingur búsettur í Taílandi er pott­ur­inn og pannan í rekstri umdeilds vef­hýs­ing­ar­fyr­ir­tækis sem gerir út á tján­ing­ar­frels­is­á­kvæði íslenskra laga. Klám, nýnas­ista­á­róður og nafn­laust níð er hýst á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. „Ég hef ekk­ert að fela,“ segir mað­ur­inn, sem er einn þeirra sem afhjúpaðir eru í Pand­óru­skjöl­unum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár