Íslendingar í aflandsleka

Á Íslandi snerta Pand­óru­skjölin allt frá vatns­verk­smiðju í Þor­láks­höfn til flug­véla­við­skipta á Tortóla, hýs­ingu kláms og fíkni­efna­sölu­síðna á Íslandi en líka til þess sem varla verður útskýrt öðru­vísi en sem ímynd­ar­sköpun. Þótt lek­inn sé sá stærsti eru fáir Íslend­ingar í skjöl­unum miðað við fyrri leka.

Íslendingar í aflandsleka

Pand­óru­skjölin er sam­an­safn 11,9 milljón mis­mun­andi skjala frá fyr­ir­tækjum sem sér­hæfa sig í að setja upp aflands­fé­lög og -sjóði. Skjöl­unum var lekið til alþjóð­legra sam­taka rann­sókn­ar­blaða­manna, International Consortium of Investigative Journalists (ICIJ), sem deildi þeim með fjöl­miðlum um allan heim; þar á meðal Stund­inni og Reykja­vík Media á Íslandi. Sömu sam­tök stóðu að birt­ingu upp­lýs­inga úr hinum svoköll­uðu Panama­skjölum árið 2016.

Á Íslandi snerta Pand­óru­skjölin allt frá vatns­verk­smiðju í Þor­láks­höfn til flug­véla­við­skipta á Tortóla, hýs­ingu kláms og fíkni­efna­sölu­síðna á Íslandi en líka til þess sem varla verður útskýrt öðru­vísi en sem ímynd­ar­sköpun. Í gögn­unum má finna upp­lýs­ingar um Íslend­ing sem starfar sem örygg­is­vörður sem stofn­aði aflands­fé­lag til að halda utan um 350 þús­und króna mán­að­ar­tekjur sínar. Og um annan sem rekur til­tölu­lega lítið eign­ar­halds­fé­lag í Sunda­görðum sem á skúffu­fé­lag á Belize í óljósum til­gangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Einar Már Gunnarsson skrifaði
    Já ljótt er að heyra af þessum feluleik hjá þessum Dúddum og fleiri eru þarna. Engeyingar eru víst þarna, hef ég heyrt.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pandóruskjölin

Aflandshýsing í aflandsfélagi hýsir klám og nýnasistaáróður á Íslandi
AfhjúpunPandóruskjölin

Aflands­hýs­ing í aflands­fé­lagi hýsir klám og nýnas­ista­á­róður á Íslandi

Íslend­ingur búsettur í Taílandi er pott­ur­inn og pannan í rekstri umdeilds vef­hýs­ing­ar­fyr­ir­tækis sem gerir út á tján­ing­ar­frels­is­á­kvæði íslenskra laga. Klám, nýnas­ista­á­róður og nafn­laust níð er hýst á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. „Ég hef ekk­ert að fela,“ segir mað­ur­inn, sem er einn þeirra sem afhjúpaðir eru í Pand­óru­skjöl­unum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár