Tortólafélag utan um rekstur í Dúbaí: „Þessar keðjur af félögum eru bara eins og jólatré

Sigfús Jónsson og Stefán Páll Þór­ar­ins­son, sem kenndir voru við fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Nýsi á árum áður, fjár­festu í bresku félagi sem átti Tortóla­fé­lag utan um starf­semi sína í fursta­dæm­inu Dúbaí. Sigfús segir notkun félags­ins hafa verið af illri nauð­syn.

Tortólafélag utan um rekstur í Dúbaí: „Þessar keðjur af félögum eru bara eins og jólatré

Við­skipta­fé­lag­arnir Sigfús Jónsson og Stefán Páll Þór­ar­ins­son voru hlut­hafar í félagi á Tortóla sem stofnað var til að reka fast­eignir í fursta­dæm­inu Dúbaí. Félagið hét Operon Middle East Limited og var í þeirra eigu á árunum 2009 og 2010. Gögn um félagið er að finna í Pand­óru­skjöl­unum. 

Þeir Sigfús og Stefán Páll voru á þessum tíma stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins Nýsis sem meðal ann­ars stund­aði fisk­veiðar í Afríku í gegnum félagið Sæblóm og fjár­festi í skóla­verk­efni Mennta­skól­ans Hrað­brautar sál­uga í Skotlandi. Nýsir var fyr­ir­tæki sem var nokkuð umsvifa­mikið á Íslandi á árunum fyrir hrunið 2008. 

Segir Tortólafélagið hafa komið til af illri nauðsyn

Sigfús segir í sam­tali við Stundina að hann hafi átt hlut í fyr­ir­tæki í Bret­landi og að þetta fyr­ir­tæki hafi átt félagið á Tortóla. „Þetta var fyr­ir­tæki á Tortóla utan um starf­semi í Dúbaí en það er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Pandóruskjölin

Aflandshýsing í aflandsfélagi hýsir klám og nýnasistaáróður á Íslandi
AfhjúpunPandóruskjölin

Aflands­hýs­ing í aflands­fé­lagi hýsir klám og nýnas­ista­á­róður á Íslandi

Íslend­ingur búsettur í Taílandi er pott­ur­inn og pannan í rekstri umdeilds vef­hýs­ing­ar­fyr­ir­tækis sem gerir út á tján­ing­ar­frels­is­á­kvæði íslenskra laga. Klám, nýnas­ista­á­róður og nafn­laust níð er hýst á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. „Ég hef ekk­ert að fela,“ segir mað­ur­inn, sem er einn þeirra sem afhjúpaðir eru í Pand­óru­skjöl­unum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár