Aflandshýsing í aflandsfélagi hýsir klám og nýnasistaáróður á Íslandi

Íslend­ingur búsettur í Taílandi er pott­ur­inn og pannan í rekstri umdeilds vef­hýs­ing­ar­fyr­ir­tækis sem gerir út á tján­ing­ar­frels­is­á­kvæði íslenskra laga. Klám, nýnas­ista­á­róður og nafn­laust níð er hýst á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. „Ég hef ekk­ert að fela,“ segir mað­ur­inn, sem er einn þeirra sem afhjúpaðir eru í Pand­óru­skjöl­unum.

Aflandshýsing í aflandsfélagi hýsir klám og nýnasistaáróður á Íslandi

Nafn­laust níð­klám, áróður nýnas­ista, sala stera, sterkra verkja­lyfja og ann­arra lyf­seð­ils­skyldra lyfja er meðal þess efnis sem hýst er í gegnum fyr­ir­tækið Orangewebsite. Það er sagt vera til húsa á Klapp­ar­stíg númer 7 í Reykja­vík. Þar er þó ekk­ert vef­hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki. Fyr­ir­tækið gefur sig út fyrir að hýsa efni án þess að þurfa að vita hver við­skipta­vin­ur­inn sé. „Okkar starf er að tryggja að þú verðir ekki fyrir rit­skoðun eða áreiti ein­hvers sem er ekki sam­mála þér,“ segir á vef fyr­ir­tæk­is­ins. 

Mikið er gert úr því að hýs­ingin fari fram á Íslandi og að íslensk lög gefi mikið svig­rúm til tján­ing­ar­frelsis. Þessi lof­orð hafa laðað að við­skipta­vini í ólög­legum eða sið­ferði­lega vafasömum við­skiptum til Orangewebsite, sem hefur fyrir vikið kom­ist áður í kast­ljós fjöl­miðla. Til að mynda fjall­aði Stundin um fyr­ir­tækið árið 2017 þegar í ljós kom að banda­rísk nýnas­ista­síða, The …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pandóruskjölin

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár