552. spurningaþraut: Hér er spurt um bæði Keir og Keir

552. spurningaþraut: Hér er spurt um bæði Keir og Keir

Fyrri auka­spurn­ing:

Í hvaða borg er brúin á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi voru fyrstu bíla­verk­smiðjur Honda?

2.  Keir Starmer — hvaða starfi gegnir hann?

3.  Úr hvaða tungu­máli er nafnið Keir komið?

4.  Keir Dullea lék eitt helsta hlut­verkið í frægri og speis­aðri kvik­mynd frá 1968. Hver er sú kvik­mynd?

5.  Hvað heitir staður sá í Hval­firði þar sem Skúli Mogensen er að byggja upp ferða­þjón­ustu?

6.  Hvað hét dóttir Brynj­ólfs Sveins­sonar bisk­ups?

7.  Í hvaða heims­álfu er ríkið Bahrein?

8.  Hún skrif­aði marglof­aða bók um gullöld íslensku reví­unnar, er virtur dag­skrár­gerð­ar­maður hjá Rás eitt Rík­is­út­varps­ins og hefur tjáð sig í fjöl­miðlum um þrá­hyggjuröskun sem hrjáir hana. Hvað heitir hún?

9.  Hvaða fót­boltalið á Englandi hefur bæki­stöðvar sínar á vell­inum Old Trafford?

10.  Nið­ur­eftir hve mörgum vegum verður maður að ganga áður en þú fellst á að kalla hann mann?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá mestan hlut af umslagi frægrar plötu sem út kom 1993. Hver var hljóm­sveitin?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Japan.

2.  Leiðtogi Verka­manns­flokks­ins á Bret­landi.

3.  Gelísku.

4.  2001: A Space Odyssey.

5.  Hvamms­vík.

6.  Ragn­heiður.

7.  Asíu.

8.  Una Margrét.

9.  Manchester United.

10.  Svarið, vinur minn, feyk­ist í vind­inum.

Eða: The answer, my fri­end, is blowing in the wind.

***

Brúin á efri mynd­inni er í Feneyjum.

Plötuna Pablo Honey gaf hljóm­sveitin Radi­ohead út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár