553. spurningaþraut: Nýtt almanak á hraða hljóðsins og fótum skordýra

553. spurningaþraut: Nýtt almanak á hraða hljóðsins og fótum skordýra

Fyrri auka­spurn­ing:

Skoðið mynd­ina hér að ofan. Hvað er þar að sjá?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hversu marga fætur hafa skor­dýr?

2.  Laust fyrir miðja fyrstu öld fyrir Krist stóð Rómverji einn fyrir því að laga alm­an­akið í rík­inu sem komið var í rugl. Hann úrskurð­aði að miða skyldi alm­an­akið við sól­ina og í hverju ári ættu að vera 365 dagar en svo hlaup­árs­dagur á fjög­urra ára fresti. Hver var þessi Rómverji?

3.  Hver er hraði hljóðs­ins — svona nokkurn veg­inn? Er það 110 kíló­metrar á klukku­stund, 1.100 kíló­metrar á klukku­stund, 11.000 kíló­metrar á klukku­stund, 110.000 kíló­metrar á klukku­stund eða 1,1 milljón kíló­metra á klukku­stund? 

4.  Í hvaða núver­andi ríki var borgin Babýlon?

5.  Hver orti ljóð sem hefst svo: „Í draumi sér­hvers manns er fall hans falið“?

6.  Hver er „rauða reiki­stjarnan·?

7.  Hversu mörg ríki eru nú Evr­ópu­sam­band­inu? Muna má einu ríki til eða frá.

8.  Frá hvaða landi er hljóm­sveitin Ramm­stein?

9.  Hvað hét síð­asta konan sem var tekin af lífi af yfir­völdum á Íslandi?

10.  Aron Pálm­ars­son hefur verið einn besti hand­bolta­maður Íslend­inga um ára­bil. Með hvaða liði spilar hann nú?

Seinni auka­spurn­ing:

Hvar er þetta hús?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Sex.

2.  Caesar.

3.  1.100 kíló­metra á klukku­stund.

4.  Írak.

5.  Steinn Steinarr.

6.  Mars.

7.  Þau eru 27, svo rétt er 26-28.

8.  Þýska­landi.

9.  Agnes. Hún var Magn­ús­dóttir en það er óþarfi að vita það.

10.  Með liði Ála­borgar í Danmörku.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni eru makkar­ónur. Það dugar EKKI að segja smákökur!

Húsið á neðri mynd­inni er á Elliðaey í Vest­manna­eyjum. Þið áttuð að átta ykkur á því vegna þess að eng­inn bíla­vegur liggur upp að hús­inu. Í Vest­manna­eyjum dugar reyndar sem rétt svar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár