Hefnd sauðfjárins

Kindur eru ótrú­legar verur, segir Valdimar Jóhanns­son, leik­stjóri Dýrsins, sem sam­býl­is­kona hans, Hrönn Krist­ins­dóttir, fram­leiddi ásamt dóttur sinni. Hér var því um fjöl­skyldu­verk­efni að ræða, en kvik­myndin hefur átt mik­illi vel­gengni að fagna. „Við vissum öll að hverju við vorum að stefna, það var ekk­ert annað sem komst að.“

Hefnd sauðfjárins

Við erum stödd í afskekktri sveit með Hraun­dranga vof­andi yfir. Fyrir neðan er bónda­bær og í hlöð­unni er lamb að fæð­ast. Hjón taka á móti lamb­inu – en taka það svo með sér inn í bæinn og ala gimbrina upp sem sína eigin dóttur. Það er aðfanga­dags­kvöld og jóla­lög í útvarp­inu – og allt ger­ist þetta í upp­hafi Dýrsins, fyrstu myndar Valdi­mars Jóhanns­sonar í fullri lengd.

Kvik­myndin rataði á topp­lista í Banda­ríkj­unum með yfir milljón doll­ara tekjur frum­sýn­ing­ar­helg­ina, hlaut frum­leika­verð­laun í Cannes og var til­nefnd sem upp­götvun árs­ins á Evrópsku kvik­mynda­verð­laun­unum. Í Variety er mynd­inni lýst sem þjóð­sögu­legri sveita­sælu-hroll­vekju, Cineuropa segir mynd­ina hjart­næma þrátt fyrir geggj­un­ina og Hollywood Reporter talar um slá­andi sterka frumraun. 

En hvernig byrj­aði þetta allt saman?

„Ég bjó mér til svona skissu­bók, þar sem ég var búinn að klippa út alls konar myndir og mál­verk og var búinn að teikna og búa til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár