548. spurningaþraut: „Ég hlýt að snúa mér undan, uns myrkrið víkur frá mér“

548. spurningaþraut: „Ég hlýt að snúa mér undan, uns myrkrið víkur frá mér“

Fyrri auka­spurn­ing:

Í hvaða bíó­mynd eða bíó­myndum birt­ist per­sónan hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  „Ég sé rauða hurð / og ég þrái að hún verði máluð svört. / Enga liti meir! / Ég vil að þeir verði svartir. / Ég sé stúlk­urnar ganga hjá, / klæddar sínu sum­ar­skarti, / ég hlýt að snúa mér undan, / uns myrkrið víkur frá mér.“ — Þetta er laus­leg íslensk þýð­ing á alkunnu ljóði, sem heitir hvað á frum­mál­inu?

2.  Árið 1801 tók Geir Vídalín við nýju starfi á Íslandi en áður hafði hann gegnt mjög sam­bæri­legu starfi í hluta lands­ins. Hvað var hið nýja starf Geirs?

3.  Hversu margar plágur lét guð Gamla Testa­ment­is­ins ganga yfir Egifta­land?

4.  Andri Lucas Guðjohn­sen er ungur að árum en skorar reglu­lega fyrir íslenska lands­liðið. Fyrir hvaða félags­lið úti í hinum stóra heimi spilar hann?

5.  Í hvaða heims­álfu er ríkið Burkina Faso?

6.  Hver mælti svo: „Að vera eða ekki vera, það er spurn­ingin.“

7.  Hvaða númer eða tala er gjarnan talin sér­stak­lega tengd djöfl­inum sjálfum?

8.  Árið 490 fyrir Krist var háð orr­usta ein, sem varð afdrifa­rík. Með sigri í orr­ust­unni stöðv­aði smá­ríki um tíma grimma ásókn stór­veldis. En bær­inn, þar sem orr­ustan var háð, hefur þó orðið enn fræg­ari vegna svo­lít­ils sem gerð­ist EFTIR orr­ust­una. Hvað heitir bær­inn?

9.  Söng­konan GDRN eða Guðrún Ýr upp­lýsti um dag­inn að hún hefði verið mjög áhuga­söm íþrótta­kona og hefði ef til vill lagt alfarið út á þá braut ef hún hefði ekki meiðst á ung­lings­árum, sem batt endi á íþrótta­fer­il­inn. Hvaða íþrótt stund­aði hún af svo miklum kappi?

10.  Heims­meist­ara­mót í hvaða tölvu­leik hófst í Laug­ar­dals­höll fyrr í haust?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er hinn glað­hlakka­legi ungi karl á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Paint It Black. Smellið á hlekk­inn frá Youtube.

Smellið hér á YouTube linkinn.

2.  Biskup Íslands.

3.  Tíu.

4.  Real Madrid.

5.  Afríku.

6.  Hamlet.

7.  666.

8.  Maraþon.

9.  Fótbolta.

10.  League of Legends.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er úr Kill Bill númer 1 eða 2.

Neðri myndin er af Tony Blair.

***

Lítið á hlekki á fyrri þrautir hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár