549. spurningaþraut sem er sérsniðin fyrir Jón Óskar

549. spurningaþraut sem er sérsniðin fyrir Jón Óskar

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver mál­aði mál­verkið sem sést hér að ofan (að hluta)?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Þann 6. apríl 1979 kom út í fyrsta sinn nýtt íslenskt viku­blað sem átti sér svo lit­ríka sögu í rúman ára­tug. Nokkrum árum seinna var blaðið svo end­ur­vakið í fáein ár. Hvað hét þetta blað?

2.  Á for­síðu fyrsta ein­taks blaðs­ins 1979 var mynd og stutt við­tal við vin­sælan íslenskan stjórn­málafor­ingja undir fyr­ir­sögn­inni „Nýtt blað, nýr for­maður.“ Stjórn­málafor­ing­inn hafði einmitt verið kos­inn for­maður í flokki sínum örfáum dögum fyrr. Hver var mað­ur­inn?

3.  Fyrsta sóló­plata David Bowies kom út árið 1967 og nefnd­ist ein­fald­lega David Bowie. Næsta sóló­plata Bowies kom út tveim árum seinna. Hún er oft kölluð Space Oddity eftir fyrsta lagi plöt­unnar, en í raun­inni hét platan ... hvað?

4.  Karl­maður nokkur fædd­ist árið 1934 og varð frægur um alla heims­byggð­ina árið 1961. Þessi afreks­maður lést svo mjög svip­lega í flug­slysi árið 1968. Hvað hét hann?

5.  Einu sinni var maður nokkur sem Tom hét að for­nafni og bjó í hinni sól­ríku Kali­forníu um 1970. Hann varð frægur í sínum hópi fyrir ansi grodda­lega hegðun á fyll­eríi einu sinni, en var þó allra kunn­astur hæfni sína á sjó­brettum á strönd­inni. Ákveðið vin­sælt fyr­ir­bæri var nefnt eftir honum (eft­ir­nafni hans) og hans „frægð­ar­verki“, og þykir fyr­ir­bærið öfl­ugt. En reyndar eru þeir til sem full­yrða að þessi saga sé upp­spuni frá rótum og nafn fyr­ir­bær­is­ins sé bara út í loftið, eins og oft mun vera með nöfn á þessum freist­andi en stundum vara­sömu fyr­ir­bærum. En nú er spurt: Hvers konar fyr­ir­bæri var nefnt eftir Tom þessum — nú, eða ekki? Og fyrir lár­við­ar­stig: Hvað kall­ast þetta sér­staka fyr­ir­bæri?

6.  Adelina Poerio lék eitt helsta hlut­verkið í víð­frægri bíó­mynd frá árinu 1973. Raunar brá henni mjög sjaldan fyrir í mynd­inni og það sást ekki framan í hana nema and­ar­tak — en það var mjög eft­ir­minni­legt and­ar­tak. En nær­vera hennar mynd­ina út í gegn var sterk og hafði mikil áhrif á aðal­per­són­urnar. Hvað hét bíó­myndin sem Adelina lék í?

7.  Hvar var Aleta drottn­ing?

8.  Fimm eru þau, hverfin í New York-borg. Hvað heita þau? — og já, það þarf að nefna öll fimm til að fá aðeins eitt stig!

9.  „Séð hef ég skraut­leg suð­ræn blóm / sól­vermd í hlýjum garði; / áburð og ljós og aðra virkt / eng­inn til þeirra sparði; / mér var þó löngum meir í hug / melgras­skúf­ur­inn harði, / runn­inn upp þar sem Kalda­kvísl / kemur úr Von­ar­skarði.“ Hver orti svo?

10.  Úr íslenskri landa­fræði: Um það leyti sem síð­ustu ísöld var að ljúka, eða fyrir 10-13 þús­und árum, þá fór að gjósa á nýjum stað. Margoft hefur gosið þar síðan og er hæsti tind­ur­inn á svæð­inu 283 metra hár. Eld­stöðvar munu þar enn vera virkar. Hvaða staður er þetta?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Úr hvaða bíó­mynd er skjá­skotið hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Helg­ar­póst­ur­inn.

2.  Stein­grímur Her­manns­son.

3.  David Bowie.

4.  Gagarin.

5.  Fyr­ir­bærið er kokk­teill — og nafn þessa til­tekna fyr­ir­bæris er Harvey Wallbanger. Tom nokkur Harvey á að hafa gengið svo af göfl­unum þegar hann bragð­aði kokk­teil­inn að hann fór að kasta sér utan í veggi á barnum þar sem boðið var upp á drykk­inn.

6.  Don't Look Now.

Adelina Poerioí hlut­verki sínu í Don't Look Now.

7.  Á Þoku­eyjum.

8.  Man­hattan, Brooklyn, Queens, Bronx, Staten Island.

9.  Jón Helgason.

10.  Vest­mann­eyjar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er brot af mál­verk­inu Fimmta inn­siglið rofið eftir El Greco.

En neðri myndin er aftur á móti ættuð úr kvik­mynd­inni Resevoir Dogs:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár