546. spurningaþraut: Þessi lögregluþjónn er að syngja lag með ...?

546. spurningaþraut: Þessi lögregluþjónn er að syngja lag með ...?

Fyrri auka­spurn­ing:

Árið 2015 komst í umferð á net­inu mynd­band af lög­reglu­mann­inum Jeff Davis í Banda­ríkj­unum þar sem hann mæm­aði við vin­sælt lag frægrar söng­konu um leið og hann rún­t­aði um yfir­ráða­svæði sitt. Hver var söng­konan sem hann hreifst svo af?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi er Kóla­skagi?

2.  Inn af hvaða firði gengur Hörg­ár­dalur?

3.  Paavo Nurmi hét karl­maður einn. Hann var frægur fyrir hvað?

4.  En frá hvaða landi var hann?

5.  Rit­höf­undur einn skrif­aði skáld­sög­urnar Sense and Sensi­bility, Mans­fi­eld Park, Emma, Nort­han­ger Abbey, Persu­asion og Lady Susan. Þá er ónefnd fræg­asta skáld­saga höf­und­ar­ins. Hvað hét sú bók?

6.  En hvað hét höf­und­ur­inn?

7.  Daenerys heitir kona í skáld­sögu eða öllu heldur skáld­sagna­bálki. Af hvaða ætt er hún?

8.  Í skáld­sagna­bálk­inum keppa helstu ætt­irnar um hásæti úr ... ja, hvaða efni?

9.  Hvar á Íslandi heldur íþrótta­fé­lagið HK til? 

10.  Hvaða ill­ræmdu útlensku hundar hafa af ein­hverjum ástæðum verið kall­aðir birnir á íslensku?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan hér að neðan? For­nafnið dugar.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Rúss­landi.

2.  Eyja­firði.

3.  Hlaup.

4.  Finn­landi.

5.  Pride and Prejudice, eða Hroki og hleypi­dómar.

6.  Jane Austen.

7.  Tar­g­ar­yan.

8.  Járni.

9.  Í Kópavogi.

10.  Bjarna­bófarnir. 

***

Söng­konan sem lög­reglu­mað­ur­inn var ánægður með var Taylor Swift. Lítið á mynd­bandið hér, það birt­ist ef þið smellið á "Watch on YouTube":

Konan á neðri mynd­inni heitir Meghan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár