Kvenraddir í klikkuðu ástandi

Herdís Stef­áns­dóttir samdi tón­list­ina við banda­rísku sjón­varps­þátta­röð­ina Y: The Last Man. Hljóð­heim­ur­inn byggir á söng kvenna­kórs á Akureyri. Hún segir að brans­inn sé hark, erfitt sé að kom­ast inn og er þakk­lát fyrir að geta valið úr verk­efnum. Nú vinnur hún að tón­list fyrir íslensku þátta­röð­ina Verbúðin.

Kvenraddir í klikkuðu ástandi

„Þetta er banda­rísk þátta­röð sem er byggð á mynda­sögu sem heitir „Y: The Last Man“ og fjallar um vírus sem drepur allar mann­eskjur og allar lif­andi verur sem eru með y-litn­ing­inn nema einn mann sem er síð­asti mað­ur­inn. Án þess að ég vilji gefa of mikið upp eða skemma fyrir áhorf­endum þá get ég sagt að þetta sé heimur án laga og reglna en það er líka fullt af kómedíu og létt­leika í þess­ari seríu þrátt fyrir að hún sé líka dimm og þung og bara klikkað ástand. Innviðir sam­fé­lags­ins eru að hrynja og helm­ingur mann­kyns er dáinn. Þetta er svo­lítið stór heimur og marglaga þannig að ég þurfti að búa til nokkra ólíka heima varð­andi tón­list­ina.“

Herdís Stef­áns­dóttir tón­skáld talar um að í dag búi mann­kynið í raun­inni ekki við svo ólíkar aðstæður hvað varðar nýja kór­ónu­vírus­inn sem veldur Covid-19. „Það er mik­ill real­ismi í ser­í­unni þannig að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár