Coviðspyrnan hélt upp á „Ivermectin daginn“ og undirbýr framboð

Hópurinn Coviðspyrnan undir for­ystu Jóhann­esar Lofts­sonar, for­manns Frjáls­hyggju­fé­lags­ins safn­að­ist við Alþingi og hvatti til notk­unar lyfs­ins Ivermectin. Nýlega komu í ljós stórir ágallar á þekkt­ustu rann­sókn­inni sem sýna átti fram á kosti lyfs­ins.

Coviðspyrnan hélt upp á „Ivermectin daginn“ og undirbýr framboð
Jóhannes Loftsson Formaður Frjáls­hyggju­fé­lags­ins segir fram­boð í tengslum við hóp­inn Coviðspyrnuna vera í bígerð. Myndin er frá mót­mælum hóps­ins frá því í októ­ber 2020. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fólk tengt hópnum Coviðspyrnan, sem hefur staðið fyrir sam­komum og umræðu á sam­fé­lags­miðlum um sótt­varn­ar­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar, und­ir­býr fram­boð til Alþingis. Hópurinn safn­að­ist fyrir utan Alþingi á laug­ar­dag og hvatti til notk­unar lyfs­ins Ivermectin gegn Covid-19, sem rann­sóknir hafa ekki sýnt hvort nýt­ist gegn sjúk­dómnum eða ekki.

Jóhannes Loftsson, for­maður Frjáls­hyggju­fé­lags­ins, hefur farið fyrir hópnum með greina­skrifum og skipu­lagn­ingu. Stundin hefur áður fjallað um erindi sem Jóhannes flutti á fundi félags­ins í des­em­ber 2019 þar sem hann sagði bráðnun jökla á Íslandi ekki vera af manna­völdum. Fund­ur­inn var í sam­starfi við Rann­sókn­ar­mið­stöð um sam­fé­lags- og efna­hags­mál, sem hefur eins og Frjáls­hyggju­fé­lagið verið sögu­lega tengt mörgum af helstu hug­mynda­fræð­ingum Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Á meðal ann­arra ræðu­manna voru Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, og tón­list­ar­mað­ur­inn Ingólfur Þór­ar­ins­son, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, sem flutti erindið „Er pönkið dautt? Lista­menn í rétt­trún­að­ar­fang­elsi“.

Nú und­ir­býr Jóhannes hins vegar fram­boð undir öðrum for­merkjum. „Mikill kraftur er kom­inn í frels­is­laug­ar­dag­inn nú eftir að við fórum að und­ir­búa fram­boð og mesti fjöldi mætti fram að þessu,“ skrif­aði hann til kynn­ingar við­burð­inum. „Ekki veitir af því þjóðin verður að fara að vakna.“

„Eina leiðin til þess að það sé hlustað á okkur er að stofna stjórn­mála­afl“

Kröfur hóps­ins hafa hingað til verið að yfir­völd láti af tak­mörk­unum sínum á sam­komum og starf­semi vegna far­ald­urs­ins. Einnig hafa heyrst kröfur eins og „nei við prófum“ og „nei við bólu­efni“, auk þess sem með­limir hóps­ins hvetja til þess að lyfið Ivermectin verði leyft gegn Covid-19. Við­burð­ur­inn var enda hald­inn á því sem kallað er „Alþjóð­legur Ivermectin dagur“.

Und­ir­bún­ingur stjórn­mála­afls á vegum hóps­ins er í bígerð og hefur verið hald­inn fundur þess efnis. „Eina leiðin til þess að það sé hlustað á okkur er að stofna stjórn­mála­afl,“ sagði Jóhannes í ræðu á úti­fund­inum á laug­ar­dag. „Það er merki­legt að RÚV vill ekki hleypa okkur í þátt­inn sinn eða nokkuð fjalla um okkur, þannig að við erum með kosn­inga­lof­orð um að útvarps­gjaldið verði í valdi hvers manns.“

Rannsókn á Ivermectin reyndist fölsk

Und­an­farið ár hefur stuðn­ingur við notkun lyfs­ins Ivermectin gegn Covid-19 verið áber­andi á sam­fé­lags­miðlum og því verið hampað af áhrifa­völdum af hægri væng stjórn­mál­anna. Lyfið hefur verið notað gegn sníkju­dýrum og lúsa­smiti og er virkni þess að því leyt­inu til þekkt og studd af rann­sóknum. Virkni þess gegn Covid-19 hefur hins vegar veikan vís­inda­legan grunn og vara bæði lyfja­eft­ir­lit Banda­ríkj­anna og Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin WHO gegn því að nota lyfið í þeim til­gangi, enda sé það ekki veiru­lyf.

Við­burður CoviðspyrnunnarTugir komu saman fyrir framan Alþingi á laug­ar­dag og hóp­ur­inn und­ir­býr nú þing­fram­boð.

The Guardian greindi nýverið frá því að ein helsta rann­sóknin á notkun Ivermectin gegn Covid-19 hafi verið fjar­lægð af vefnum sem birti hana vegna sið­ferð­is­legra ágalla. Rann­sóknin var fram­kvæmd í egypskum háskóla, birt í nóv­em­ber og sögð vera svokölluð slembd klínísk til­raun (e. randomized controlled trial) með notkun við­mið­un­ar­hópa. Nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar var að þeir sem veikt­ust af Covid-19 og fengu Ivermectin snemma gegn sjúk­dómnum hafi hlotið góðan bata og það hafi verið 90 pró­sent lægri dán­ar­tíðni hjá þeim sem fengu Ivermectin en við­mið­un­ar­hópnum.

Í mán­uð­inum var greinin hins vegar fjar­lægð þegar í ljós kom að stór hluti hennar var fals­aður og byggði á texta úr hinum og þessum frétta­til­kynn­ingum og af vef­síðum um Ivermectin sem breytt hafði verið handa­hófs­kennt. Und­ir­liggj­andi gögn hafi síðan ekki stemmt við nið­ur­stöðu grein­ar­innar, þar sem aldur þátt­tak­anda var rangt skráður, flestir sjúk­ling­anna sem lét­ust hafi verið látnir áður en rann­sóknin hófst og fjöldi þeirra sem fengu Ivermectin og lét­ust hafi verið hærri í gögn­unum en í texta grein­ar­innar.

Þingmaður varar við snákaolíusölumönnum

Aðrar rann­sóknir á Ivermectin eru nú í fram­kvæmd og eins og áður segir er ekk­ert stað­fest um hvort eða hvernig lyfið gæti gagn­ast í bar­átt­unni við Covid-19.

„Snáka­ol­íu­sölu­menn­irnir eru hins vegar afger­andi með svona sögur“

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, skrif­aði um frétt The Guardian á Facebook sinni á dög­unum. „Nú hef ég sem þing­maður fengið þó nokkra tölvu­pósta um þetta mál og tekið þátt í þó nokkrum umræðum á net­inu,“ skrifar hann. „Það hefur verið mjög erfitt að fá fólk í þessum umræðum til þess að treysta vís­inda­lega ferl­inu - lík­lega af því að það er bara ekki nægi­lega hratt og afger­andi fyrir til­finn­ingar fólks. Snáka­ol­íu­sölu­menn­irnir eru hins vegar afger­andi með svona sögur og það er lyk­ill­inn að því að þekkja þá innan vís­ind­anna. Ég vona að fólk læri af þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár