Fyrstu covid-mótmælin á Íslandi: „Segjum nei við bóluefni“
Mótmælin í dag Hópurinn Coviðspyrnan heldur mót­mæli gegn sótt­varn­ar­að­gerðum yfir­valda. Hópurinn söng afmæl­is­söng­inn fyrir Þórólf Guðnason sótt­varna­lækni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fyrstu covid-mótmælin á Íslandi: „Segjum nei við bóluefni“

Hópurinn Coviðspyrnan kom saman á Aust­ur­velli í dag til að mót­mæla sótt­varn­ar­að­gerðum gegn Covid-19-far­aldr­inum.

Hópur fólks undir for­merkj­unum Coviðspyrnan kom saman á Aust­ur­velli í mið­borg Reykja­víkur í dag til þess að mót­mæla sótt­varn­ar­að­gerðum yfir­valda. Krafan var að yfir­völd létu af tak­mörk­unum sínum á sam­komum og starf­semi, sem ætlað er að draga úr covid-19-far­aldr­inum.

Aðrar kröfur sem heyrð­ust meðal hóps­ins voru þær að bólu­setn­ing skyldi verða val­kvæð, að hætt yrði að prófa fyrir kór­óna­veirunni og jafn­vel að sagt yrði „nei við bólu­efni“.

Einn lést síð­asta sól­ar­hring­inn og 61 er á spít­ala vegna far­ald­urs­ins.

„Ekkert rosalega gáfulegt“

„Við viljum fá meiri umræður í gang, við viljum fá meiri sjón­ar­mið, og við viljum bara að rödd okkar heyr­ist,“ sagði Helga Birg­is­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur, skipu­leggj­endi mót­mæl­anna, á vett­vangi. „Ég per­sónu­lega, sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur, og bara mann­eskja, ég er bara svo langt frá því að vera sam­mála því að allar þessar hörðu reglu­gerðir, sem loka gam­alt fólk inni, jafn­vel mán­uðum saman, setja krakka síend­ur­tekið í sótt­kví, mæl­ast til að fólk gangi með maska fyrir and­lit­inu, sem eru yfir­leitt margnota og orðnar sýkla­stíur, þreif­andi á mösk­unum, gömlum möskum, troð­andi þeim á and­litið á sér og káfa svo á öllu í versl­un­inni, þar sem þú ert líka að versla. Mér finnst þetta ekk­ert endi­lega rosa­lega gáfu­legt.“

Meðal mót­mæl­enda voru Jóhannes Loftsson, for­maður Frjáls­hyggju­fé­lags Íslands, sem bar mót­mæla­skilti með áletr­un­inni: „Að deyja ekki er ekki það sama og að lifa.“ Jóhannes hóf að und­ir­búa mót­mæli strax í byrjun ágúst vegna þess að hann taldi hætt­una af covid-19 minni en almanna­varnir meta hana.

Meðal þess sem hann hefur lagt til er að D-vítamín verði beitt gegn veirunni. Ekki hefur þó verið sýnt fram á virkni D-vítamíns gegn covid-19, umfram almenn góð heilsu­fars­leg áhrif af því að forð­ast D-vítamínskort. Enn eru yfir­stand­andi rann­sóknir á áhrifum vítamíns­ins á covid-19.

Samkomubann líklega hert

Sam­komu­bann er í gildi sem felur í sér að ekki mega fleiri en 20 koma saman. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að til greina kæmi að lækka hámarks­fjöld­ann til að ná tökum á far­aldr­inum. Heil­brigð­is­ráð­herra mun fá til­lögur frá Þórólfi um upp­færða reglu­gerð á næstu tveimur sól­ar­hringum.

Yfir­stand­andi tak­mark­anir fel­ast meðal ann­ars í lokun veit­inga­staða klukkan 21 á kvöldin, algerri lokun kráa og skemmti­staða, lokun sund­staða og lík­ams­rækt­ar­stöðva og svo banni við hóp­í­þróttum sem fela í sér snert­ingu.

Auk þess er bann við starf­semi þar sem nálægð er mikil. Það á til dæmis við um hár­snyrti­stofur, snyrti­stofur, nudd­stofur, húð­flúr­stofur, hunda­snyrti­stofur, sól­baðs­stofur og aðra sam­bæri­lega starf­semi.

Þá eru ferða­menn sem koma til lands­ins skikk­aðir í tvö­falda skimun og fimm daga sótt­kví, eða 14 daga sótt­kví.

Áhyggjur af aðgerðumFormaður Frjáls­hyggju­fé­lags­ins, Jóhannes Loftsson, til hægri.
Mis­jafnar kröfurMót­mæl­andi fór fram á að sagt yrði nei við skimun, ein­angrun og bólu­efni.
Skipu­leggj­and­innHelga Birg­is­dóttir heldur á skilti sínu þar sem hún segir: Óttinn lamar ónæm­is­kerfið.
„Ekki ein­angra alla“Sumir mót­mæl­enda vilja verja þá við­kvæm­ustu, en á sama tíma segir skipu­leggj­and­inn að nóg sé komið að því að loka inni gam­alt fólk.
Hópurinn við lög­gjaf­ar­sam­kom­unaMót­mæl­endur héldu á köflum tveggja metra fjar­lægð á milli sín.
Sendu Þórólfi skila­boðMót­mæl­endur vildu koma á fram­færi skila­boðum til sótt­varn­ar­læknis.Heiða Helga­dóttir

Yfir 40 þúsund lokið sóttkví

Á sama tíma og mót­mælin eru haldin eru fleiri Íslend­ingar á spít­ala vegna covid-19 heldur en nokkru sinni áður frá því far­ald­ur­inn hófst, eða 61. Þar af er þó aðeins einn á gjör­gæslu. 1.062 eru í ein­angrun, smit­aðir af sjúk­dómnum, og þess utan 1.667 í sótt­kví og 1.548 í skimun­ar­sótt­kví. 

4.671 hafa greinst með covid-19 á Íslandi, en ljóst er að fleiri hafi fengið sjúk­dóm­inn án þess að grein­ast. Þá hafa 39 verið lagðir inn á gjör­gæslu­deild og sam­tals 240 á sjúkra­hús. 41.156 Íslend­ingar hafa lokið sótt­kví. Tveir á níræð­is­aldri hafa lát­ist í þriðju bylgju far­ald­urs­ins, en í fyrstu bylgj­unni lét­ust níu manns.

Hópurinn Coviðspyrnan stóð fyrir und­ir­skrift­ar­söfnun gegn sótt­kví og við­bót­ar­skimun ferða­manna fyrr í haust. 415 manns skráðu sig á list­ann. 

Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir sagði í dag að lítið þyrfti til svo að far­ald­ur­inn færi úr bönd­unum, en erfitt hefur reynst að fækka greindum smitum í þriðju bylgj­unni. Haft var eftir honum á frétta­vef Morg­un­blaðs­ins að þótt heild­ar­dán­ar­tíðni væri undir með­al­tali á Íslandi á þessu ári, segði það ekki alla sög­una.

„Það þarf ekki mikið til þess að far­ald­ur­inn fari úr bönd­un­um. Land­spít­al­inn er nú þegar kom­inn á neyð­ar­stig. Ef það verður verra kem­ur það niður á öðrum sjúk­linga­hóp­um. Það þarf ekki að koma fram í dán­ar­töl­um. Það get­ur komið fram í öðrum al­var­leg­um af­leið­ing­um. Það get­ur líka komið fram í langvar­andi al­var­leg­um af­leið­ing­um fyrr covid-sjúk­linga. Þetta snýst ekki bara um dauðs­föll,“ sagði hann.

Í athuga­semd sem barst frá skipu­leggj­anda við­burð­ar­ins vegna frétt­ar­innar kemur fram að ekki sé um mót­mæli að ræða, heldur „með­mæli með mann­rétt­indum“. Því er hér komið á fram­færi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár