Þau síðustu úr bólusetningarlottóinu fá skammt í vikunni

Nú er skipu­lögð fjölda­bólu­setn­ing á loka­metr­unum en þegar hafa rúm­lega 80 pró­sent þeirra sem til stendur að bólu­setja fengið að minnsta kosti einn skammt. Flestir eru full­bólu­settir. Í vik­unni verða síð­ustu árgang­arnir úr bólu­setn­ing­ar­lottó­inu boð­aðir í höll­ina.

Þau síðustu úr bólusetningarlottóinu fá skammt í vikunni
Loka­metr­arnir Bólu­setn­ing­ar­lottó­inu fer að ljúka. Mynd: Heiða Helgadóttir

Síðasta stóra bólu­setn­ing­ar­vikan er að hefj­ast. Sex árgangar karla og átta kvenna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa fengið boð í bólu­setn­ingu en það eru síð­ustu árgang­arnir sem dregnir voru upp úr föt­unni í bólu­setn­ing­ar­lottó­inu. Flestir árgang­arnir fá Janssen-sprautu nú á þriðju­dag en fjórir árgangar fá fyrri skammt Pfizer á mið­viku­dag. 

Erf­ið­lega gekk að koma út Janssen skömmtun sam­kvæmt boðun í síð­ustu viku, þegar 1.500 skammtar voru eftir þegar allir boð­aðir tímar voru liðnir. Skammt­arnir gengu þó út eftir að öllum óbólu­settum og ósmit­uðum var boð­inn skammtur. 

Nú þegar hafa lang­flestir Íslend­ingar eldri en sextán ára fengið að minnsta kosti einn bólu­efn­ak­sammt við COVID-19 og yfir helm­ingur verið full­bólu­settur. 

Dagskrá vik­unnar er svona:

Þriðju­dagur 22. júní fá karlar fæddir 1990, 1991, 1995 og 1998 og konur fæddar 1985,1989, 1991, 1995 og 1999 Janssen sprautu. 

Mið­viku­dagur 23. júní fær yngsti hóp­ur­inn sem verður bólu­settur Pfizer; það eru ung­menni fædd árið 2005 óháð kyni. Til við­bótar verða karlar fæddir 1980 og 1989 og konur fæddar 1987 og 1994 bólu­settar. 

Báða dag­ana býðst sem eiga eldra boð, ónotað, í hvort bólu­efni fyrir sig að koma og fá sprautu á meðan birgðir end­ast. 

Bólu­setn­ing­ar­vik­unni átti svo að ljúka á fimmtu­dag, 24. júní, með seinni bólu­setn­ingu Astra Zeneca. Ólíklegt þykir að þeir skammtar ber­ist í tæka tíð. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár