Íslandsdeild alþjóðlegrar nasistahreyfingar úthýst af .is léni vegna nýrra laga

Foringi íslenskra nýnas­ista, Rík­harður Léo Magn­ús­son, er ósáttur við að .is heima­síðu sam­taka hans hafi verið lokað. Hann segir að ný lög um íslensk lands­höf­uð­lén feli í sér að Ísland aðhyllist ekki lengur mál­frelsi.

Íslandsdeild alþjóðlegrar nasistahreyfingar úthýst  af .is léni vegna nýrra laga
Mótmæli á Lækj­ar­torgi Norð­ur­vígi, íslands­deild Norrænu and­stöðu­hreyf­ing­ar­innar, hefur haldið sam­komur á Íslandi sem hingað til hafa verið fámennar. Myndin sýnir eina slíka mót­mæla­stöðu við sendi­ráð Finn­lands á Íslandi um jólin 2018.

Íslands­deild nas­ista­sam­tak­anna Norrænu and­stöðu­hreyf­ing­ar­innar hefur hætt með .is-lén og tekið upp .net-lén í kjöl­farið á nýrri laga­setn­ingu frá Alþingi. Þetta kemur fram á heima­síðu Íslands­deild­ar­innar Nordur­vigi.net. „Íslands­armur Norrænu mót­stöðu­hreyf­ing­ar­innar þurfti nauð­syn­lega að breyta léni vef­síð­unnar nordur­vigi.is yfir í nordur­vigi.net núna á sunnu­dag­inn,“ segir í frétt­inni og þar sem fram kemur að heima­síðu hreyf­ing­ar­innar hafi ein­fald­lega verið lokað.  

Nýju lögin voru sam­þykkt á Alþingi þann 18. maí og kynnti rík­is­stjórnin þau á heima­síðu sinni þann 20. maí. Um er að ræða laga­frum­varp Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra, um íslensk lands­höf­uð­lén með .is-end­ing­unni.  

Um nýju lögin sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son í til­kynn­ingu rík­is­stjórn­ar­innar: „Miðað við mik­il­vægi nets­ins í nútíma­sam­fé­lagi var ærið til­efni til að setja laga­lega umgjörð um lands­höf­uð­lén sem hafa beina skírskotun til Íslands. Við samn­ingu lag­anna var einkum litið til örygg­is­sjón­ar­miða og var það …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár