Tvær íslenskar myndir frumsýndar á Stockfish

„Það eru mikil for­rétt­indi núna að fá að fara í bíó,“ segir Rósa Ásgeirs­dóttir, dag­skrár­stjóri Stockfish-kvik­mynda­há­tíð­ar­innar sem er hafin í Bíó Paradís. Myndir eru sér­valdar inn af erlendum hátíðum.

Tvær íslenskar myndir frumsýndar á Stockfish
Rósa Ásgeirs­dóttir Dag­skrár­stjóri Stockfish segir áherslu hátíð­ar­innar vera á gæði umfram magn og áhorf­endur geti því treyst á þær myndir sem valdar voru til sýn­ingar. Mynd: Davíð Þór

Tvær íslenskar kvik­myndir eru frum­sýndar á Stockfish-kvik­mynda­há­tíð­inni sem hófst í Bíó Paradís í síð­ustu viku. Hátíðin stendur yfir til 30. maí og má þar finna allt frá Ósk­arsverð­launa­myndum yfir í súr­r­eal­ísk rúss­nesk lista­verk.

Rósa Ásgeirs­dóttir dag­skrár­stjóri segir áherslu hátíð­ar­innar vera á gæði kvik­mynda frekar en fjölda þeirra. „Við erum með við­ráð­an­legan fjölda af myndum, tutt­ugu og þrjár myndir alls, sex sýndar hvern dag. Þær eiga allar að vera mjög góðar og áhorf­endur eru ekki að taka mik­inn séns. Þeir geta mætt og séð gull­mola,“ segir hún.

Sjálf seg­ist hún þegar hafa horft á þær nær allar, nema þá þær fræg­ari sem valdar voru inn vegna til­nefn­inga sem þær fengu til Ósk­arsverð­launa. „Ég ætla að fá að sjá þær í bíó,“ segir Rósa. „Við tökum inn hátíð­ar­myndir sem eru búnar að flakka á milli kvik­mynda­há­tíða und­an­farið ár. Þær hafa verið frum­sýndar í Berlín, Cannes eða Feneyjum til dæmis og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár