Sendiráð Íslands í Washington dregst inn í umræðu um bresti sonar Bandaríkjaforseta

Sendiráð Íslands í Washington er í húsi þar sem Hunter Biden. sonur Banda­ríkja­for­seta, var með skrif­stofu. Hunter braut örygg­is­reglur húss­ins ítrekað og fékk ákúrur vegna þeirra sendi­ráða sem eru í hús­inu. Geir H. Haarde var sendi­herra Íslands í Washington á þessum tíma.

Sendiráð Íslands í Washington dregst inn í  umræðu um bresti sonar Bandaríkjaforseta
Værdi sænska rík­is­stofnun um ras­isma Hunter Biden vændi sænska rík­is­stofnun um ras­isma eftir að hann var gagn­rýndur fyrir að brjóta örygg­is­reglur í húsi í Washington þar sem Svíþjóð og Ísland eru með sendi­ráð sín. Hann sést hér með Joe Biden, föður sínum og for­seta Banda­ríkj­anna.

„Það eru tvö sendi­ráð í bygg­ing­unni, sendi­ráð Íslands og Sví­þjóðar, sem gerir það að verkum, auk bruna­varna, að gerðar eru strangar kröfur um að það liggi fyrir vit­neskja um hverjir og hversu margir eru í bygg­ing­unni á hverjum tíma­punkti,“ segir Michael Blomqvist, starfs­maður sænsku rík­is­stofn­un­ar­innar Svenska fastig­hets­verk, aðspurður um mál Hunter Biden, sonar Joe Biden, sem leigði skrif­stofu í húsi í eigu sænska rík­is­ins í Washington árið 2017. Hunter flutti á end­anum úr hús­inu vegna ítrek­aðra brota á örygg­is­reglum þess. Greint er frá mál­inu á for­síðu sænska dag­blaðs­ins Dagens Nyheter í dag. 

Sendi­herra í WashingtonGeir Haarde var sendi­herra Íslands þegar Hunter Biden leigði skrif­stofu í sama húsi og sendi­ráðið íslenska var í.

Sendiráð Íslands er með skrif­stofur sínar í umræddu húsi, House of Sweden, sem liggur við Potomac-ána í Washington og hefur sendi­ráðið dreg­ist inn í umræð­una um mál Hunter Biden vegna þessa. Geir H. Haarde, fyrr­ver­andi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár