Selja þriggja milljarða makrílkvóta: „Þetta er mikill tilfinningarússíbani“

Páll Þór Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Hugins í Eyjum, segir að erfitt sé að horfa á eftir útgerð sem verið hefur í fjöl­skyld­unni í 62 ár. Huginn er frum­kvöð­ull í mak­ríl­veiðum við Ísland og fékk 6.6 millj­arða kvóta fyrir þremur árum.

Selja þriggja milljarða makrílkvóta: „Þetta er mikill tilfinningarússíbani“
Sjöunda stærsta útgerðin Vinnslu­stöðin var fyrir við­skiptin sjö­unda stærsta útgerð lands­ins og stækkar nú enn. Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son er fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar.

„Þetta er mik­ill til­finn­inga­rús­sí­bani þegar maður er að láta svona frá sér, gam­alt fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki,  ætt­ar­óð­alið getur maður sagt, en maður vissi svo sem alltaf að þessi dagur kæmi,“ segir Páll Þór Guð­munds­son, frá­far­andi fram­kvæmda­stjóri og einn af selj­endum útgerðar Hugins í Vest­manna­eyjum. Vinnslu­stöðin í Eyjum hefur keypt meiri­hlut­ann í útgerð­inni, 52 pró­sent, af þeim systk­inum Páli, Gylfa, Guðmundi og Bryndísi Guð­munds­börnum en fyrir átti Vinnslu­stöðin 48 pró­sent í Hugin.

Páll Þór segir að kaup­verðið verði ekki gefið upp. „Kaupverð er aldrei gefið upp í svona við­skiptum. Menn geta kannski reynt að fiska það upp úr árs­reikn­ingum þegar þeir koma.“ Aðspurður um hvort þau systk­inin gangi sátt frá borði segir Páll „já, já.“ 

Kaup­verðið ekki gefið uppHlut­deild systk­in­anna í mak­ríl­kvóta Hugins var um 3 millj­arðar króna.

Með söl­unni líkur 62 ára eign­ar­haldi fjöl­skyldu systk­in­anna á útgerð í Vest­manna­eyjum en faðir systk­in­anna, Guð­mundur Gunn­ars­son, stofn­aði útgerð­ar­fé­lag með þessu nafni í Eyjum árið 1959. Bræður Páls munu hins vegar halda áfram að starfa sem skip­stjórar hjá Vinnslu­stöð­inni eftir að við­skiptin hafa gengið í gegn, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Vinnslu­stöð­inni. 

Huginn ehf. rekur frysti­togar­ann Huginn VE-55 og stundar veiðar á upp­sjáv­ar­teg­undum, mak­ríl, loðnu, kolmunna og síld. 

Makríllinn um 6 milljarða króna virði

Huginn er önnur þeirra útgerða sem leitt hefur mála­rekst­ur­inn gegn íslenska rík­inu síð­ast­liðin ár út af mak­rílút­hlut­un­inni á árunum 2011 til 2018. Telur útgerðin að hún hefði átt að fá rúm 8 pró­sent mak­ríl­kvót­ans en ekki tæp­lega 6,6 pró­sent.  Hin útgerðin var Ísfélag Vest­manna­eyja. 

Huginn fékk úthlutað mak­ríl­kvóta árið 2019 þegar sú fisk­teg­und var kvóta­sett út frá veiði­reynslu. Huginn var frum­kvöð­ull í mak­ríl­veiðum á Íslandi eins og Vinnslu­stöðin nefnir í til­kynn­ingu sinni um við­skiptin: „Útgerð­ar­fé­lagið Huginn var frum­kvöð­ull að mak­ríl­veiðum við Ísland og fór að þreifa fyrir sér í þeim efnum á árunum 2002 til 2006 en með mis­jöfnum árangri. Það var svo sum­arið 2007 að áhöfn Hugins VE náði alls um 3.000 tonnum, þar af um 2.500 tonnum í íslenskri lög­sögu og 500 tonnum í þeirri fær­eysku. Þar með hófust beinar mak­ríl­veiðar í lög­sögu Íslands.“

Huginn er í dag sjö­undi stærsti kvóta­hand­hafi í mak­ríl á Íslandi með 6.6 pró­sent kvót­ans og er hann tæp­lega 6 millj­arða króna virði miðað við þorskígild­is­stuðul mak­ríls, sam­kvæmt vef Fiski­stofu fyrir árið 2021. Samkvæmt þessu verði er sölu­verð á mak­ríl­kvóta 700 krónur fyrir hvert kíló. Miðað við þetta eru systk­inin nú að selja mak­ríl­kvóta fyrir rúm­lega 3 millj­arða króna til Vinnslu­stöðv­ar­innar. 

Huginn á auk á þess tæp­lega 1,4 pró­sent loðnu­kvót­ans, 4,2 pró­sent loð­munna­kvót­ans og rúm 4.6 pró­sent norsk-íslenska síld­ar­kvót­ans við Íslands­strendur og 2.2 pró­sent síld­ar­kvót­ans. 

„Það er gott að eign­irnar verði áfram heima“
Páll Þór Guð­munds­son

Kvóti upp á marga millj­arða króna er því að skipta um hendur og Vinnslu­stöðin stækkar enn en félagið var, fyrir við­skiptin, sjö­unda stærsta útgerð lands­ins með til­liti til kvóta­eignar. 

Gott að eignirnar verði í Eyjum

Páll Þór segir að hann sé sáttur við það að Vinnslu­stöðin hafi keypt eign­ar­hlut­ann í félag­inu og eign­irnar verði áfram í Vest­manna­eyjum. „Það er gott að eign­arnar verði áfram heima og þetta haldi áfram starf­semi heim. Það hjálpar manni í þessum til­finn­inga­rússi­bana að láta þessar eignir frá sér,“ segir Páll Þór. 

Tals­verðar deilur voru innan Vinnslu­stöðv­ar­innar á milli Eyja­mann­anna í eig­enda­hópnum, sem Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son var í for­svari fyrir, og Guð­mundar Krist­jáns­sonar í Brim þegar sá síð­ar­nefndi átti hlut í félag­inu. Þeirri deilu var gjarnan stillt upp sem deilu Eyja­manna og utan­bæj­ar­manna. Ekki var skorið á þann hnút fyrr en Kaup­fé­lag Skag­firð­inga eign­að­ist hlut Guð­mundar í Vinnslu­stöð­inni. Eign­ar­haldið á Huginn helst hins vegar í heima­byggð og á Vinnslu­stöðin nú allt félagið.  

Ekki náð­ist í Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son, fram­kvæmda­stjóra Vinnslu­stöðv­ar­innar, við vinnslu frétt­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár