Sakborningur í Samherjamálinu tæmdi bankareikninga sína fyrir handtöku

Mike Nghip­unya, fyrr­ver­andi for­stjóri rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Fishcor, er sagður hafa fengið greiddar rúmar 90 millj­ónir íslenskra króna fyrir aðkomu sína að Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu. Hann lifði hátt og hratt og varði háum fjár­hæðum í hem­sóknir á næt­ur­klúbba í Windhoek sam­kvæmt namibískum fjöl­miðlum.

Sakborningur í Samherjamálinu tæmdi bankareikninga sína fyrir handtöku
Staldra við lífs­stíl­inn Fjöl­miðlar í Namibíu staldra við líff­stíl Mike Nghip­unya, fyrr­ver­andi for­stjóra rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Fishcor, sem setið hefur í gæslu­varð­haldi í eitt ár út af aðild sinni að Sam­herj­a­mál­inu.

Einn af sak­born­ing­unum í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu, Mike Nghip­unya, nær tæmdi banka­reikn­inga sína áður en hann var hand­tek­inn fyrir aðild sína að mál­inu í febr­úar í fyrra. Hann hefur setið í gæslu­varð­haldi síðan og hefj­ast rétt­ar­höld yfir honum í apríl á þessu ári. Greint er frá greiðsl­unum til Nghip­unya og máli hans í namibískum fjöl­miðlum. 

Nghip­unya var for­stjóri rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Fishcor sem sá um að útvega sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum kvóta og greiddi Samherji „hákörlunum“ svoköll­uðu mútu­greiðslur fyrir að fá hesta­makríl­skvóta í gegnum fyr­ir­tækið. Sjóður í eigu Nghip­unya, Gwanyemba Invest­ment Trust, fékk greiddar 10,5 millj­ónir Namib­íu­doll­ara, rúmar 90 millj­ónir króna, á árunum 2017 til 2019 og eru þessir fjár­munir taldir hafa verið hlut­deild Nghip­unya í að koma að mál­inu. Þar af voru 6,5 millj­ónir Namib­íu­doll­ara greiddar inn á banka­reikn­ing sjóðs Nghip­unya á milli jan­úar og nóv­em­ber 2019 en í þeim mán­uði greindu Kveikur, Stundin, Wikileaks og Al Jazeera frá því að Samherji hefði greitt hópi Namib­íu­manna í áhrifa­stöðum undir borðið til að fá aðgang að hesta­makríl­skvóta í Namibíu.

Rekja lífs­stíl­innSak­born­ing­arnir í Namibíu lifðu allir hátt, eins og fjöl­miðlar þar í landi hafa rakið. Sacky Shangala, James Hatuikulipi og Tamson Hatuikulipi sjást hér í vélsleða­ferð í Eyjafiði í boðii Samherja.

Greiðslurnar taldar nema 2 milljörðum Namibíudollara

Eftir að fjöl­miðlar greindu fyrst frá Sam­herj­a­mál­inu, við­tak­endur fjár­mun­anna frá Samherja voru hnepptir í gæslu­varð­hald og rann­sókn máls­ins fór á fullt í Namibíu hefur ýmis­legt áhuga­vert komið í ljós og málið hefur stækkað mjög. Til að mynda þá telja rann­sak­end­urnir í Namibíu nú að greiðslur til þessa hóps manna og með­reið­ar­sveina þeirra nemi um 2 millj­örðum Namib­íu­doll­ara, eða rúm­lega 17 millj­örðum íslenskra króna. Einungis lít­ill hluti af þessu fé er tal­inn hafa komið frá Samherja. 

Þegar upp­haf­lega var greint frá mál­inu var raktar greiðslur frá Samherja til hóps­ins sem námu um 1,4 millj­arði íslenskra króna eða um 164 millj­ónum Namib­íu­doll­ara. Ákæru­valdið og spill­ing­ar­lög­reglan í Namibíu hafa því kom­ist að því í rann­sóknum sínum að greiðsl­urnar í mál­inu sem mögu­lega eru óeðli­legar hafi komið frá fleiri aðilum en Samherja þó svo að „hákarl­arnir“ hafi verið hnepptir í gæslu­varð­hald á grund­velli greiðsln­anna sem þeir fengu frá Samherja. 

Rannsókn máls­ins hefur því sprungið út og snýst nú meðal ann­ars um það að for­seti lands­ins, Hage Geingob, og Swapo-flokk­ur­inn, valda­flokk­ur­inn í land­inu sem „hákarl­arnir“ til­heyra, hafi komið að því að skipu­leggja við­skiptin með kvót­ann sem nú er til rann­sóknar sem mútu­brot. 

Teikna upp mynd af einkaneyslu Nghipunya

Fjöl­miðlar í Namibíu fjalla um einka­neyslu Nghip­unya í sam­hengi við rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins og þá fjár­muni sem hann fékk í sinn hlut. Nghip­unya stofn­aði meðal ann­ars sína eigin tísku­fata­línu, TM Clothing, árið 2017 og fjár­festi fyrir rúm­lega 2,3 millj­ónir íslenskra króna í henni á árunum 2017 til 2020. 

Þá er hann sagður hafa notið þess að eyða fjár­munum á næt­ur­klúbbum og meðal ann­ars eytt tæp­lega 800 þús­und krónum á slíkum stöðum í höf­uð­borg­inni Windhoek á árunum 2018 og 2019. Á einu kvöldi á klúbbnum The Experience er hann sagður hafa eytt tæp­lega 182 þús­und krónum. 

Þá rekja nambískir miðlar að hann hafi keypt nokkrar fast­eignir í Namibíu, eytt mörg hund­ruð þús­und krónum í flug­miða til landa í Evrópu og Afríku, eytt miklum pen­ingum á flug­vell­inum í Madríd og í stór­verslun þar í borg, sem og að dvelja á dýrum lúx­us­hót­elum á ferðum sínum. 

Namibískir fjöl­miðlar hafa með sam­bæri­legum hætti greint frá einka­neyslu ann­arra sak­born­inga í Sam­herj­a­mál­inu, meðal ann­ars þeirra Tamson Hatukulipi og Sacky Shangala, og meðal ann­ars sagt frá fjár­fest­ingum þeirra í lúx­us­bílum og dýrum úrum. 

Með þessu eru namibískir fjöl­miðlar að teikna upp meðal ann­ars í hvaða pen­ing­arnir fóru sem þessir ein­stak­lingar fengu fyrir aðkomu sína að Sam­herj­a­mál­inu, sem kallað er Fishrot á ensku, og sem vindur stöðugt upp á sig. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár