Föngum nú boðið upp á geðheilbrigðisþjónustu

Geð­heilsuteymi fang­elsa er nýlegt teymi á vegum Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem býður föngum upp á með­ferð við geð­heil­brigð­is­vanda svo sem ADHD. Með­ferðin er fjöl­þætt og er boðið upp á sam­tals­með­ferðir og lyf ef þarf. „ADHD-lyfin draga nátt­úr­lega úr hvat­vís­inni sem maður vonar að verði til þess að við­kom­andi brjóti ekki af sér aftur eða fari að nota vímu­efni aftur,“ segir Arndís Vil­hjálms­dóttir geð­hjúkr­un­ar­fræð­ingur.

Föngum nú boðið upp á geðheilbrigðisþjónustu
Arndís Vil­hjálms­dóttir geð­hjúkr­un­ar­fræð­ingur Segir að lang­tíma­mark­miðið sé að það dragi úr end­ur­komum í fang­elsi. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Gagnrýni manna á rétt á sér þar sem það hefur ekki verið mikil geð­heil­brigð­is­þjón­usta í boði fyrir fanga en núna erum við að fara af stað og brennum öll fyrir þessum hópi; og það er alveg rétt að áður en teymið tók til starfa þá var þessum málum lítið sinnt. Fyrri ADHD-lyf voru bönnuð í fang­els­unum auk þess sem fátt starfs­fólk er á með­ferð­ar­sviði hjá Fang­els­is­mála­stofnun og er meira að sinna þessum brota­tengdu þáttum,“ segir Arndís Vil­hjálms­dóttir geð­hjúkr­un­ar­fræð­ingur, sem er í geð­heilsuteymi fang­elsa sem var full­mannað í fyrra­vor og tók þá til starfa.

Geðheilbrigðisþjónustu verulega ábótavant

„Eftir að Alþjóða­pynt­inga­nefndin gerði úttekt á geð­heil­brigð­is­þjón­ustu í fang­els­unum var ljóst að geð­heil­brigð­is­þjón­ustu var veru­lega ábóta­vant. Í fram­hald­inu var farið í hug­mynda­vinnu og geð­heilsuteymi fang­elsanna sett á stofn á vegum Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem veita þjón­ustu í öllum fjórum fang­els­unum; Hólms­heiði, Litla-Hrauni, Sogni og Kvía­bryggju. Við erum fjögur sem erum í geð­heilsuteym­inu, ég, …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fangar og ADHD

Ómeðhöndlað ADHD getur boðið hættunni heim
ViðtalFangar og ADHD

Ómeð­höndlað ADHD getur boðið hætt­unni heim

Talið er að sjö til átta pró­sent fólks sé með tauga­þroska­rösk­un­ina ADHD. Nauð­syn­legt er að greina ADHD á fyrstu árum grunn­skóla og bjóða upp á við­eig­andi með­ferð, því ómeð­höndlað getur það haft nei­kvæð áhrif á ein­stak­ling­inn og fólkið í kringum hann. Ef barn með ADHD fær ekki aðstoð aukast líkur á að fram komi fylgirask­anir, sem geta orðið mun alvar­legri en ADHD-ein­kennin.
Fann frið í fangelsinu
ViðtalFangar og ADHD

Fann frið í fang­els­inu

Á sínum yngri árum var Völundur Þor­björns­son óstýri­látur og sótti í spennu án þess að vita að hann væri með ADHD. Þörfin fyrir athygli ágerð­ist eftir móð­ur­missi, spennan stig­magn­að­ist og ákærur hrönn­uð­ust inn. Í fang­elsi fann hann loks frið og upp­lifði dvöl­ina ekki sem frels­is­svipt­ingu heldur end­ur­ræs­ingu. Í kjöl­farið upp­lifði hann amer­íska draum­inn í Kanada og styður nú við son í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár