Fann frið í fangelsinu

Á sínum yngri árum var Völundur Þor­björns­son óstýri­látur og sótti í spennu án þess að vita að hann væri með ADHD. Þörfin fyrir athygli ágerð­ist eftir móð­ur­missi, spennan stig­magn­að­ist og ákærur hrönn­uð­ust inn. Í fang­elsi fann hann loks frið og upp­lifði dvöl­ina ekki sem frels­is­svipt­ingu heldur end­ur­ræs­ingu. Í kjöl­farið upp­lifði hann amer­íska draum­inn í Kanada og styður nú við son í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli.

Fann frið í fangelsinu
Völundur Þor­björns­son Segist aldrei vera hræddur við að hlut­irnir gangi ekki. Mynd: Úr einkasafni

Þörfin fyrir spennu fylgdi Völundi Þor­bjarn­ar­syni lengi. Hann er fæddur og upp­al­inn á Húsavík, átti „ynd­is­lega æsku“ og var rólegt barn framan af, jafn­vel til fyr­ir­myndar fram að ferm­ingu. Skóla­gangan var að vísu skraut­leg, segir hann, sem gekk vel í þeim fögum sem hann hafði áhuga á en ekk­ert í öðrum. Á seinni hluta ung­lings­ár­anna fór hann að finna fyrir ákveðnum ein­kennum og lífið fór að breyt­ast. „Mér leið best þegar það var mikið að gera. Sextán ára gam­all var ég kom­inn á sjó­inn og hafði engan áhuga á að mennta mig.“

Það var um það leyti sem lífið fór að breyt­ast. Hann fór að finna fyrir óró­leika ef það var ekk­ert að gera og ekk­ert fram undan. „Hlut­irnir þurftu alltaf að vera spenn­andi, alltaf eitt­hvert plan sem ég hlakk­aði til. Í Húsavík á 8. ára­tugnum var tak­markað fram­boð af afþr­ey­ingu og íþróttir var það besta sem var í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fangar og ADHD

Ómeðhöndlað ADHD getur boðið hættunni heim
ViðtalFangar og ADHD

Ómeð­höndlað ADHD getur boðið hætt­unni heim

Talið er að sjö til átta pró­sent fólks sé með tauga­þroska­rösk­un­ina ADHD. Nauð­syn­legt er að greina ADHD á fyrstu árum grunn­skóla og bjóða upp á við­eig­andi með­ferð, því ómeð­höndlað getur það haft nei­kvæð áhrif á ein­stak­ling­inn og fólkið í kringum hann. Ef barn með ADHD fær ekki aðstoð aukast líkur á að fram komi fylgirask­anir, sem geta orðið mun alvar­legri en ADHD-ein­kennin.
Föngum nú boðið upp á geðheilbrigðisþjónustu
ViðtalFangar og ADHD

Föngum nú boðið upp á geð­heil­brigð­is­þjón­ustu

Geð­heilsuteymi fang­elsa er nýlegt teymi á vegum Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem býður föngum upp á með­ferð við geð­heil­brigð­is­vanda svo sem ADHD. Með­ferðin er fjöl­þætt og er boðið upp á sam­tals­með­ferðir og lyf ef þarf. „ADHD-lyfin draga nátt­úr­lega úr hvat­vís­inni sem maður vonar að verði til þess að við­kom­andi brjóti ekki af sér aftur eða fari að nota vímu­efni aftur,“ segir Arndís Vil­hjálms­dóttir geð­hjúkr­un­ar­fræð­ingur.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár