Ómeðhöndlað ADHD getur boðið hættunni heim

Talið er að sjö til átta pró­sent fólks sé með tauga­þroska­rösk­un­ina ADHD. Nauð­syn­legt er að greina ADHD á fyrstu árum grunn­skóla og bjóða upp á við­eig­andi með­ferð, því ómeð­höndlað getur það haft nei­kvæð áhrif á ein­stak­ling­inn og fólkið í kringum hann. Ef barn með ADHD fær ekki aðstoð aukast líkur á að fram komi fylgirask­anir, sem geta orðið mun alvar­legri en ADHD-ein­kennin.

Ómeðhöndlað ADHD getur boðið hættunni heim
Sólveig Ásgríms­dóttir sál­fræð­ingur Segir að fylgirask­anir ADHD séu oft erf­iðastar. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Það er ákaf­lega erfitt fyrir fólk með ADHD ef það fær hvorki grein­ingu né með­ferð við hæfi,“ segir Sólveig Ásgríms­dóttir sál­fræð­ingur en í þessu við­tali er sjónum sér­stak­lega beint að drengjum með ómeð­höndlað ADHD.  

Talið er að 7–8% fólks sé með tauga­þroska­rösk­un­ina ADHD. ADHD er um það bil helm­ingi algeng­ari hjá körlum en konum og er talið að 4–5% full­orð­inna glími við ADHD. „Þetta virð­ist tengj­ast van­virkni boð­efna í heila og er stjórn­kerfi heil­ans ekki að virka. Kjarna­ein­kenni ADHD eru athygl­is­brestur, ofvirkni og hvat­vísi. Stundum eru öll ein­kennin jafn ráð­andi, stundum einkum athygl­is­brestur og stundum ofvirknin og hvat­vísi. Út frá þessum kjarna­ein­kennum þró­ast síðan fylgirask­an­irnar.“

Ýmsar fylgiraskanir

Sólveig segir að fylgirask­an­irnar séu oft erf­iðastar. „Flestir full­orðnir með ADHD glíma við ein­hverjar fylgirask­anir sem leiða má til ADHD. Ef barn með ADHD fær ekki við­eig­andi með­ferð aukast líkur á að fram komi fylgirask­anir en þær geta …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fangar og ADHD

ViðtalFangar og ADHD

Föngum nú boðið upp á geð­heil­brigð­is­þjón­ustu

Geð­heilsuteymi fang­elsa er nýlegt teymi á vegum Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem býður föngum upp á með­ferð við geð­heil­brigð­is­vanda svo sem ADHD. Með­ferðin er fjöl­þætt og er boðið upp á sam­tals­með­ferðir og lyf ef þarf. „ADHD-lyfin draga nátt­úr­lega úr hvat­vís­inni sem maður vonar að verði til þess að við­kom­andi brjóti ekki af sér aftur eða fari að nota vímu­efni aftur,“ segir Arndís Vil­hjálms­dóttir geð­hjúkr­un­ar­fræð­ingur.
ViðtalFangar og ADHD

Fann frið í fang­els­inu

Á sínum yngri árum var Völundur Þor­björns­son óstýri­látur og sótti í spennu án þess að vita að hann væri með ADHD. Þörfin fyrir athygli ágerð­ist eftir móð­ur­missi, spennan stig­magn­að­ist og ákærur hrönn­uð­ust inn. Í fang­elsi fann hann loks frið og upp­lifði dvöl­ina ekki sem frels­is­svipt­ingu heldur end­ur­ræs­ingu. Í kjöl­farið upp­lifði hann amer­íska draum­inn í Kanada og styður nú við son í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli.

19 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár