Fullyrðingar um kaupmáttaraukningu vafasamar

Hag­fræði­deild Lands­bank­ans og Samtök atvinnu­lífs­ins draga vafa­samar álykt­anir um aukn­ingu kaup­máttar út frá hag­tölum. Ekki er tekið til­lit til tekju­falls þús­unda manns sem misst hafa atvinnu og hafa því orðið fyrir kaup­mátt­ar­skerð­ingu.

Fullyrðingar um kaupmáttaraukningu vafasamar
Atvinnu­lausir ekki hluti af jöfn­unni Óvarlegt er að draga þá álytkun að hækkun launa­vísi­tölu umfram vísi­tölu neyslu­verðs jafn­gildi almennri kaup­mátt­ar­aukn­ingu. Taka þarf til­lit til þeirra sem misst hafa atvinnu sína og hafa því orðið fyrir kaup­mátt­ar­skerð­ingu. Mynd: Shutterstock

Varasamt er að meta kaup­mátt­ar­aukn­ingu út frá mis­mun á hækkun launa­vísi­tölu og vísi­tölu neyslu­verðs, eins og gert var í hag­spá Lands­bank­ans og frétt Samtaka atvinnu­lífs­ins í síð­ustu viku. Ástæðan er sú að launa­vísi­tala mælir aðeins breyt­ingu á launum þeirra sem fá greidd laun fyrir störf sín en tekur ekki til­lit til þeirra sem misst hafa vinnu og eru því ýmist á atvinnu­leys­is­bótum eða tekju­lausir.

Lands­bank­inn birti í Hagsjá sinni 24. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn sam­an­tekt á breyt­ingum á launa­vísi­tölu milli mán­aða og á síð­asta tólf mán­aða tíma­bili. Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar hækk­aði launa­vísi­talan um 0,7 pró­sent milli sept­em­ber og októ­ber og um 7,1 pró­sent síð­ustu tólf mán­uði. Á sama tíma­bili var árs­hækkun vísi­tölu neyslu­verðs 3,6 pró­sent. Í Hagsjá Lands­bank­ans er það túlkað sem svo að kaup­mátt­ar­aukn­ing milli ára sé enn tölu­verð, 3,4 pró­sent. Hið sama gera Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) í frétt sem birt var degi síðar, 25. nóv­em­ber.

Ráðstöfunartekjur heimilanna betri mælikvarði

Gunnar Axel Axelssondeild­ar­stjóri þjóð­hags­reikn­inga og opin­berra fjár­mála hjá Hag­stof­unni.

Þó það sé rétt, eins langt og það nær, að kaup­mátt­ar­aukn­ing þeirra sem fá greidd reglu­leg laun sé 3,4 pró­sent, er kaup­mátt­ar­vísi­tala launa sem sett er saman úr launa­vísi­tölu og vísi­tölu neyslu­verðs veikur mæli­kvarði á hag heim­il­anna í land­inu. „Slíkur mæli­kvarði mælir bara kaup­mátt launa þannig að í teor­í­unni gæti 90 pró­sent þjóð­ar­innar misst atvinnu og tapað ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum en kaup­mátt­ar­vísi­tala launa gæti sam­tímis hækkað. Það er ekki fyrr en ráð­stöf­un­ar­tekjur heim­il­anna liggja fyrir sem hægt er að leggja mat á þróun kaup­máttar ráð­stöf­un­ar­tekna, sem er í raun allt annar mæli­kvarði,“ segir Gunnar Axel Axelsson, deild­ar­stjóri þjóð­hags­reikn­inga og opin­berra fjár­mála hjá Hag­stof­unni.

„Kaup­mátt­ar­aukn­ing þeirra er engin, eða öllu heldur nei­kvæð“

Þórólfur Matth­í­as­sonpró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands.

Þórólfur Matth­í­as­son hag­fræði­pró­fess­ors bendir á hið sama er varðar túlkun hag­fræði­deildar Lands­bank­ans og SA. Þó hægt sé að halda því fram að aukn­ing hafi orðið á kaup­mætti þeirra sem hafa atvinnu og fá greidd laun eigi það ekki við um þá sem hafi misst vinnu sína og fái greiddar atvinnu­leys­is­bætur. „Kaup­mátt­ar­aukn­ing þeirra er engin, eða öllu heldur nei­kvæð,“ segir Þórólfur. Hann seg­ist telja að fram­setn­ing eins og sú sem Lands­bank­inn setur fram sé byggð á van­þekk­ingu. „

 „Neyslu­verðs­vísi­talan mælir í prinsipp­inu alla neyslu en launa­vísi­tala mælir bara laun þeirra sem eru í vinnu. Betra væri að skoða breyt­ingu á ráð­stöf­un­ar­tekjum heim­il­anna til að fá mynd af stöð­unni og áhrifum Covid-19 far­ald­urs­ins. Það sem truflar í þessu er að alla jafna, sé lítil breyt­ing á atvinnu­leysi, er lík­legt að kaup­mátt­ar­breyt­ing á launa­vísi­tölu segi heil­mikið um breyt­ingu á ráð­stöf­un­ar­tekjum heim­il­anna. En ef eitt­hvað annað breyt­ist sam­hliða þá á það ekki lengur við.“

Upp­lýs­ingar um ráð­stöf­un­ar­tekjur heim­il­anna liggja hins vegar ekki fyrir þar eð Hag­stofan vinnur þær upp­lýs­ingar upp úr skatt­fram­tölum og fram­töl fyrir yfir­stand­andi ár hafa vit­an­lega ekki borist.

Tuttugu þúsund manns atvinnulausir

Almennt atvinnu­leysi var 9,9 pró­sent í októ­ber og jókst um 0,9 pró­sentu­stig frá fyrri mán­uði. Það þýðir að 20.252 voru atvinnu­lausir í almenna bóta­kerf­inu í lok októ­ber­mán­aðar. Í októ­ber á síð­asta ári voru atvinnu­lausir 7.700. Því er hægt að halda því fram með réttu að kaup­máttur ríf­lega 12.552 Íslend­inga hafi, ef ekki dreg­ist saman þá í mesta lagi staðið í stað, síð­ustu tólf mán­uði. Auk þess mæld­ist 1,2 pró­sent atvinnu­leysi tengt minnk­uðu starfs­hlut­falli, alls 4.759 manns. Sam­an­lagt atvinnu­leysi var því 11,1 pró­sent í októ­ber.

Í hag­spá Lands­bank­ans og einnig í frétt SA var gert nokkuð úr því að hækkun launa­vísi­tölu á síð­ustu mán­uðum væri „óneit­an­lega dálítið sér­stök“ í ljósi þeirrar kreppu sem Covid-19 far­ald­ur­inn hefur haft í för með sér. Talið var að launa­hækk­anir vegna kjara­samn­inga grunn­skóla­kenn­ara og hjúkr­un­ar­fræð­inga ættu þarna hlut að máli og einnig mögu­lega að auknar álags­greiðslur og bónusar.

Þessi fram­setn­ing var gagn­rýnd af ýmsum, til að mynda Jónasi Atla Gunn­ars­syni rit­stjóra Vís­bend­ingar. Benti hann á að hækkun á launa­vísi­tölu væri meðal ann­ars til­komin vegna lækk­unar launa að raun­gildi í ferða­þjón­ustu og tengdum geirum, störfum þar sem laun væru almennt lægri en í öðrum atvinnu­greinum. Það væri því eðli­legt að með­al­laun hækki þegar lág­launa­störfum fækki, sem ann­ars myndu draga með­al­tal launa niður.

Launa­vísi­tala er byggð á pöruðum sam­an­burði milli tíma­bila á launum sömu ein­stak­linga í sama starfi. Launa­vísi­tala er þannig ekki launa­vísi­tala með­al­launa. Því er óvar­legt að áætla að hækkun launa­vísi­tölu hafi með fækkun lág­launa­starfa að gera. Í ljósi þess að lögð hefur verið áhersla á það í kjara­samn­ingum síð­ast­liðin miss­eri að hækka laun lág­launa­stétta hlut­falls­lega meira en þeirra stétta sem hærri laun hafa gæti launa­vísi­tala allt eins hafa auk­ist enn meira en raun ber vitni hefðu áhrif Covid-19 ekki komið til, þó ekki sé hægt að full­yrða það.  

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-kreppan

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
5
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár