Ég var alltaf með samviskubit

Davíð Þór Jónsson, sókn­ar­prestur Laug­ar­nes­kirkju, var lagður í ein­elti í nokkur ár í grunn­skóla. Hann ákvað á ung­lings­ár­unum að ganga til liðs við ger­end­urna til að sleppa við ein­eltið og fór að leggja í ein­elti. Þetta allt hafði mikil áhrif á hann.

Ég var alltaf með samviskubit
Lagði í ein­elti til að losna undan ein­elti Davíð Þór Jónsson upp­lifði að hann væri öruggur á meðan hann tók þátt í ein­elti, þá væri hann ekki skot­spónn sjálfur. Mynd: Heiða Helgadóttir

Davíð Þór Jónsson, sókn­ar­prestur Laug­ar­nes­kirkju, bjó í Reykja­vík fyrstu 10 ár ævinnar og var glatt og ham­ingju­samt barn. Hann flutti með fjöl­skyldu sinni til Hafn­ar­fjarðar og þá breytt­ist allt þar sem hópur stráka í skól­anum fór að leggja hann í ein­elti þegar hann var 11 ára.

„Í árgang­inum sem ég var í voru drengir sem áttu mjög erfitt.“ Davíð Þór segir að hóp­ur­inn hafi verið ógn­valdur á skóla­lóð­inni og að hann sjálfur og nokkrir aðrir hafi legið vel við höggi. „Sumir fóru síðar út í mikla óreglu og jafn­vel ofbeldi. Svo voru í hópnum strákar sem ég held að séu sið­blindir.“

Davíð Þór segir að ein­eltið hafi ágerst jafnt og þétt. „Þetta byrj­aði með orðum, svo var farið að sitja fyrir manni á leið­inni heim úr skól­anum, skóla­taskan mín var fyllt með snjó og snjó troðið inn á mig og ég var lam­inn. Hann má eiga það, dreng­ur­inn sem lamdi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sögur af einelti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár