Biden kominn yfir í Georgíu

Nið­ur­stöður úr póst­kosn­ingu virð­ast tryggja Joe Biden for­seta­emb­ættið, að mati frétta­stofa vest­an­hafs.

Biden kominn yfir í Georgíu
Joe Biden Fram­bjóð­andi Demókrata hefur náð yfir­hönd­inni í Georgíu. Mynd: afp

Joe Biden, fram­bjóð­andi Demókrata, er nú með fleiri atkvæði í rík­inu Georgíu en Donald Trump Banda­ríkja­for­seti. Verði það nið­ur­staðan þegar öll atkvæði í rík­inu hafa verið talin dugar það honum til að tryggja sér for­seta­emb­ættið.

Mjótt hefur verið á mun­unum í nokkrum lyk­il­ríkjum vegna þess fjölda atkvæða sem bár­ust í póst­kosn­ingu. Biden leiðir nú í Georgíu með aðeins 917 atkvæðum, en Trump hafði yfir­hönd­ina framan af taln­ing­unni. Aðeins á eftir að telja nokkur þús­und atkvæði í rík­inu.

Sá fram­bjóð­andi sem vinnur í Georgíu fær þar með 16 svo­kall­aða kjör­menn, en 270 þarf til þess að tryggja sér for­seta­emb­ættið. Margar frétta­stofur, þar á meðal AP og Fox News, hafa lýst því yfir að Biden sé nú þegar með 264 kjör­menn. Þessi nið­ur­staða í Georgíu mundi því tryggja honum sig­ur­inn sam­kvæmt því.

Biden yrði með þessu fyrsti fram­bjóð­andi Demókrata til að vinna í Georgíu síðan Bill Clinton vann árið 1992. Biden er einnig tal­inn hafa sigrað í ríkj­unum Wisconsin og Michigan og hafa frétta­stof­urnar AP, Politico og Fox News lýst hann sig­ur­veg­ara í Arizona. Beðið er eftir nið­ur­stöðum úr Nevada, þar sem Biden hefur verið með yfir­hönd­ina, en sigur þar mundi tryggja honum 6 kjör­menn.

Einnig er mjótt á mun­unum í Penn­syl­vaníu, en sig­ur­veg­ar­inn þar hlýtur 20 kjör­menn. Trump hefur verið yfir þar, en Biden hefur saxað á for­skotið þegar 275 þús­und atkvæði eru eftir ótalin.

Trump hefur hins vegar haldið því fram að stór hluti atkvæð­anna séu ólög­leg, kallað eftir því að taln­ing atkvæða verði stöðvuð og vill að hæsti­réttur taki ákvörðun um fram­haldið. Í færslu á Twitter seg­ist hann auð­veld­lega vinna ef tekið sé til­lit til lög­legra atkvæða. Twitter hefur eins og oft áður merkt færslu hans sem mis­vísandi upp­lýs­ingar.

Ef litið er til heild­ar­fjölda greiddra atkvæða í Banda­ríkj­unum hefur Biden hlotið rúm­lega 4 millj­ónum fleiri atkvæði en Trump. Nið­ur­stöður kosn­ing­anna velta hins vegar á kjör­mönnum sem deilt er niður á ein­stök ríki í land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2020

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
2
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár