Sigur Trumps hilling?

Joe Biden á ennþá góða mögu­leika á því að sigra Donald Trump, vegna þess að mörg atkvæði eru ótalin í þétt­býlum sýslum lyk­il­ríkja.

Sigur Trumps hilling?
Trump tók Flórída Donald Trump flutti heim­ili sitt til Flórída á kjör­tíma­bil­inu og hefur upp­skorið sigur í rík­inu, með óvæntri hjálp inn­flytj­enda frá Kúbu og Venes­ú­ela. Hefði hann ekki unnið Flórída teld­ust mögu­leikar hans litlir. Mynd: CHANDAN KHANNA / AFP

Þótt staða taln­ingar í banda­rísku for­seta­kosn­ingum vísi nú til þess að Donald Trump sé að ná end­ur­kjöri, og að hann hafi sjálfur lýst yfir sigri, eru und­ir­liggj­andi vís­bend­ingar um honum verði velt úr sessi.

Joe Biden á enn mögu­leika á því að sigra í ríkjum sem Hillary Clinton tap­aði í fyrir fjórum árum, einna helst: Wisconsin, Michigan, Georgíu, Norður-Karólínu og Penn­syl­vaniu. 

Í öllum þessum ríkjum, nema Wisconsin, hefur Trump fengið meiri­hluta tal­inna atkvæða. Í því er þó ekki tekið til­lit til þess hvernig atkvæði rað­ast. Rætt er um rauða hill­ingu eða bláa hill­ingu, þegar fyrstu tölur benda til afger­andi sig­urs Repúblik­ana eða Demókrata vegna hlut­falls­legrar skekkju í taln­ing­ar­ferl­inu. Slík skekkja getur mynd­ast þegar utan­kjör­fund­ar­at­kvæði eru talin síðar eða þegar sterk vígi ann­ars flokks­ins eru talin hægar en hin. Það á við um lyk­il­ríkin sem Donald Trump má ekki missa ef hann ætlar að vera rétti­lega end­ur­kjör­inn.

Lykilríkin gætu sveiflast

Þannig eru mörg ótalin atkvæði í þétt­býlum svæðum, þar sem Demókratar njóta meira fylgis, bæði í Georgíu, Norður Karólínu, Michigan og Penn­syl­vaniu.

Í Penn­syl­vaniu hefur Trump mikið for­skot á Biden, með um 55% tal­inna atkvæða gegn 44% Bidens. Þar á hins vegar eftir að telja mik­inn fjölda utan­kjör­fund­ar­at­kvæða. Að auki hefur aðeins rúm­lega helm­ingur atkvæða verið tal­inn í Phila­delp­hiu, þar sem Biden hefur yfir­gnæf­andi stuðn­ing, og um 70% atkvæða í sýsl­unni umhverfis Pitts­burgh, þar sem Biden hefur einnig meiri­hluta­stuðn­ing. 

Biden getur hins vegar nú orðið for­seti án þess að vinna í tæpri stöðu í Penn­syl­vania, meðal ann­ars vegna þess að hann virð­ist hafa tryggt sér sigur í Arizona, heima­ríki repúblikan­ans og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­and­ans John McCains heit­ins, sem var fyrir and­lát sitt svar­inn and­stæð­ingur Trumps og varð fyrir aðkasti af hans hálfu.

BidenÁ kjör­stað í gær.
Trump lýsir sig sig­ur­veg­araÞrátt fyrir að úrslit séu ekki komin í ljós lýsti Trump því yfir að hann hefði sigrað, en að verið væri að reyna að stela kosn­ing­unum.
Ræða Bidens á kosn­inga­nóttJoe Biden sagð­ist ánægður með stöð­una og lof­aði þol­in­mæði við­staddra.

Tekur Biden Michigan?

Sama gildir um fjöl­mennar sýslur víða ann­ars staðar í lyk­il­ríkj­unum. Í Michigan hefur Trump 50% stuðn­ing þegar þetta er skrifað, en Biden 48,5%. Þar hefur hins vegar aðeins tæpur helm­ingur atkvæða í sýsl­unni í kringum stærstu borg­ina Detroit verið tal­inn, en þar hefur Biden mælst með mun meiri stuðn­ing en Trump. 

Í Norður-Karólínu skilur aðeins rúm­lega eitt pró­sent atkvæða að Trump og Biden, en þar eru flest ótalin atkvæði í þétt­býli í kringum Charlotte og Raleigh.

Sömu sögu er að segja af Georgíu, þar sem áætlað er að 20% atkvæða í stærstu borg­inni Atlanta séu ótalin, sem og í vígi demókrata í Savannah. Á sama tíma eru atkvæði nán­ast full­talin í dreibýlli sýslum þar sem stuðn­ingur er meiri við Donald Trump.

Kristján Guy Burgess alþjóða­stjórn­mála­fræð­ingur seg­ist á Facebook telja að Biden muni vinna kosn­ing­arnar. „Sýnist á öllu að þegar öll atkvæði verða talin að Biden nái þessu. Veltur á atkvæðum í Atlanta, Milwaukee og Detroit sem á eftir að telja og Trump vill stoppa taln­ing­una á.“

Kosn­inga­vaka ABC News
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2020

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
2
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár