Skammaði starfsfólk fyrir grímuskyldu: „Þá verður að kalla til lögreglu“

„Þetta er svo mikið kjaftæði,“ sagði Víðir Reyn­is­son við því að fólk þrá­ist við að nota grímur. Sama dag birti maður mynd­band af sér í Bónus þar sem hann sýndi dóna­skap vegna grímu­skyldu. Guð­mundur Mart­eins­son, fram­kvæmda­stjóri Bónus, segir að ef fólk taki ekki rökum verði að kalla til lög­reglu. Allt að 100 þús­und króna sekt getur varðað við brotum gegn notkun á and­lits­grímum.

Með dónaskap og leiðindi Trausti Eysteinsson birti myndband af sér þar sem hann deildi við starfsfólk Bónus þar eð hann vildi ekki bera grímu í verslun. Grímunotkun er skylda í verslunum og veitir vernd gegn Covid-19, bæði fyrir þann sem grímuna ber og aðra sem eru nálægt honum.

Þrátt fyrir að grímu­skylda hafi verið inn­leidd í versl­unum frá og með síð­ast­liðnum laug­ar­degi er enn fólk sem þrá­ast við að hlýða þeim reglum. Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn var þung­orður þegar hann lýsti á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í gær furðu sinni og reiði yfir þeirri stað­reynd að starfs­fólk versl­ana hefði þurft að sitja undir ókurt­eisi, dóna­skap, hót­unum og allt að því ofbeldi af hálfu við­skipta­vina sem and­æfðu grímu­skyld­unni. „Þetta er svo mikið kjaftæði að ég trúi því varla að við skulum þurfa að fást við þetta núna,“ sagði Víðir og var allt annað en sáttur við hegðun fólks.

Síðar sama dag birti Trausti Eysteins­son, mark­þjálfi og múr­ari, upp­töku af versl­un­ar­ferð sinni í Bónus í Hafn­ar­firði. Trausti hafði eitt og annað að athuga við það að grímu­skylda væri í versl­un­inni. Neitaði hann að setja upp grímu en brá þó klút eða buffi fyrir vit sér. Þegar starfs­maður Bónus til­kynnti Trausta að það væri skylt að bera grímu sem upp­fylli þau skil­yrði sem í gildi eru um sótt­varnir brást Trausti illa við og reifst við starfs­mann­inn en ákvað þó að lokum að hafa sig á brott. „Verið þið sælar og þið ættuð að skamm­ast ykkar öll sem takið þátt í þessu leik­riti,“ sagði Trausti að skiln­aði og fékk þá kveðj­una „sömu­leiðis“ frá öðrum gesti búð­ar­innar.

Grímur veita vörn

Trausti lýsti því enn fremur ítrekað yfir í umræddu mynd­bandi sínu að verið væri að plata fólk með grímu­skyld­unni og um leik­rit væri að ræða. Taldi hann aug­sjá­an­lega að um ein­hvers konar sam­særi væri að ræða, full­yrti rang­lega að grímu­skylda gerði fólk veik­ara og ýjaði að því að annað væri þar að baki. „Það er verið að taka athygl­ina frá öðru sem er að ger­ast með þessu Kínaflensu­bulli.“

Þeir sem notað hafa orð­færi eins og Kínaflensa eða Kína vírus hafa verið gagn­rýndir harð­lega enda það talið sýna kyn­þátta­hyggju. Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur þannig verið gagn­rýndur fyrir slíkt orð­færi og Jeffrey Ross Gunter, sendi­herra Banda­ríkj­anna á Íslandi, fékk einnig hörð við­brögð við því þegar hann skrif­aði á Twitter: „Við erum sam­einuð í að sigra Ósýni­lega Kína Vírusinn!“

Á Vís­ind­vefnum hefur Ólafur S. Andr­és­son, pró­fessor í erfða­fræði við Háskóla Íslands, greint frá því að að grímur komi að gagni til að verj­ast því að úða­dropar ber­ist á milli manna en Covidd-19 veiran er ekki síst talin ber­ast á milli manna með þeim hætti, eða óbeint um fleti sem fólk snertir. Grímur geti því dregið tölu­vert úr hættu á að smit­aðir ein­stak­ingar smiti aðra. Þá geta þær einnig veitt vörn fyrir þá sem ósmit­aðir eru, gegn hósta eða hnerra­smiti frá þeim sem smit­aður er.

Í grein­ingu spænska dag­blaðs­ins El País, sem Stundin fékk heim­ild til að end­ur­birta, er sýnt hversu mikil hætta getur verið á því að smit ber­ist milli fólks í lok­uðu rými. Þar er einkum fjallað um skóla­stofur, veit­inga­hús og heima­hús en engu að síður gefur umfjöll­unin glögga mynd af því hversu óhemju mikið gagn grímunotkun getur gert til að draga úr hættu á smiti.

Grímunotkun er skylda en ekki val

Í minn­is­blaði sótt­varn­ar­læknis, sem er grunn­ur­inn að reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra um hertar sótt­varnir sem tóku gildi frá og með 31. októ­ber kemur fram að aðgerð­irnar sem ráð­ast á í eigi að snúa að því að minnka sem mest sam­neyti fólks, virða tveggja metra regl­una sem mest, og auka notkun á grímum. Þar sem ekki sé hægt að virða tveggja metra nálægð­ar­mörk verði sett á grímu­skylda. Skylt sé að bera and­lits­grímur í versl­unum og við aðra þjón­ustu. Í reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra er þetta stað­fest og grímu­skylda án allra und­an­tekn­inga.

Samkvæmt sekt­ar­fyr­ir­mælum rík­is­sak­sókn­ara, frá 14. ágúst síð­ast­liðnum, ákvarð­ast sekt ein­stak­lings sem ekki notar and­lits­grímu eftir alvar­leika brots­ins. Getur hún hlaupið á bil­inu tíu þús­und krónur og allt upp í eitt­hund­rað þús­und krónur.

Hegðun sem þessi undantekning

Guð­mundur Mart­eins­son, fram­kvæmda­stjóri Bónus, segir að hegðun sem sú sem Trausti sýndi af sér sé sem betur fer fátíð. „Heilt yfir er fólk mjög skiln­ings­ríkt og þetta hefur almennt gengið mjög vel, miðað við þann mikla fjölda við­skipta­vina sem við fáum til okkar. Þetta eru þessi fáu eins­dæmi sem að fá mik­inn fókus. Starfs­maður okkar brást hár­rétt við og gerði allt rétt og sem betur fer er svona hegðun und­an­tekn­ing. Því miður koma svona til­felli upp þó.“

„Við ætlum ekki að standa í ein­hverju þrasi við fólk, ef almenn rök duga ekki þá verður að kalla til lög­reglu“

Guð­mundur segir að það sé þó auð­vitað óþol­andi fyrir starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins að þurfa að standa í svona stappi. „Algjör­lega. Við höfum gefið það út til okkar starfs­fólks og örygg­is­verði að ef að koma upp mál sem virð­ast vera að fara í ein­hvern far­veg sem við ekki sættum okkur við þá á bara að hringja á lög­regl­una, sem fylgir þessum reglum eftir. Við ætlum ekki að standa í ein­hverju þrasi við fólk, ef almenn rök duga ekki þá verður að kalla til lög­reglu.“

„Þessi regla er ekki sett að ástæðulausu“

Stundin fal­að­ist eftir við­tali við Víði Reyn­is­son vegna máls­ins en sökum mik­illa anna gafst ekki kostur á því. Jóhann K. Jóhanns­son upp­lýs­inga­full­trúi Almanna­varn­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra svar­aði í hans stað og sagði að þar á bæ hefðu borist all nokkur skila­boð um sam­svar­andi fram­ferði og Trausti sýndi af sér. „Þetta mynd­band er í anda þess sem Víðir nefndi á fund­inum í gær. Við erum að reyna að beina því til fólks að sýna hvert öðru umhyggju í þess­ari stöðu sem við erum í. Engu að síður, ef fólk hefur grun um brot á reglum eða lögum um sótt­varnir á að til­kynna það til lög­reglu.

Jóhann segir að leið­beina þurfi fólki enn frekar um það hvers konar grímur sé ætl­ast til að það beri. „Maðurinn í þessu mynd­bandi ber buff um háls­inn og dregur það upp, það er ekki við­ur­kenndur hlífð­ar­bún­aður við þessar aðstæður. Gríma kemur í veg fyrir dropa­smit sem er ein af þeim leiðum sem veiran hefur til að ber­ast milli manna. Grímu­skylda er þar sem tveggja metra reglu verður ekki komið við. Þessi regla er ekki sett að ástæðu­lausu. Það var ekki grímu­skylda í fyrstu bylgj­unni en á þeim mán­uðum sem liðnir eru höfum við lært meira á veiruna og hvernig hún vinnur, það er ástæðan fyrir því að þessar reglur hafa verið settar núna. Þetta hefur áhrif.

„Það er áhyggju­efni að fólk skuli koma svona fram við annað fólk“

Svo virð­ist sem mað­ur­inn í umræddu mynd­bandi, Trausti, hafi ákveðið fyr­ir­fram að vera með upp­steyt vegna grímu­skyld­unnar. Spurður hvort það sé áhyggju­efni að fólk sé bein­línis að snapa deilur og æsing við versl­un­ar­fólk vegna þessa segir Jóhann að svo sé vissu­lega. „Það er áhyggju­efni að fólk skuli koma svona fram við annað fólk. Þetta gæti verið hluti af þeirri far­sótt­ar­þreytu sem við höfum verið að tala um. Þessi far­aldur er orð­inn lang­vinnur, hann er erf­iður og þessar ströngu tak­mark­anir sem eru í gildi hafa áhrif á fólk. En náum ekki árangri nema að gera þetta saman og fólk þarf að koma fram við hvert annað af virð­ingu. Starfs­fólk versl­ana er sett í þá stöðu að fylgj­ast með því að farið sé að sótt­varn­ar­reglum og það er ekki við það að sakast, það eru stjórn­völd sem setja regl­urnar.“

Fyrir skemmstu var blásið til fámennra mót­mæla á Aust­ur­velli þar sem hópur, sem nefnir sig Covidviðspyrnan kom saman til að mót­mæla sótt­varn­ar­að­gerðum gegn Covid-19 far­aldr­inum. Meðal þess sem mót­mælt var þar var grímu­skylda, auk ann­ars.

Alls hafa 17 lát­ist af völdum Covid-19 far­ald­urs­ins á Íslandi, þar af lést einn í gær. 27 inn­an­lands­smit greindust í gær og eru nú 872 í ein­angrun, smit­aðir af sjúk­dómnum. 74 liggja á sjúkra­húsi og þar af fjórir á gjör­gæslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár