Upplýsingafundur Almannavarna: „Svo mikið kjaftæði að ég trúi því varla að við skulum þurfa að fást við þetta“

Hundruð beiðna um und­an­þágur frá sótt­varn­ar­reglum hafa borist síð­ust daga. Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn hvatti fólk til að sækja ekki um und­an­þágur nema lífs­nauð­syn­legt væri á upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna nú fyrr í dag. Þá hefur starfs­fólk versl­ana setið undir dóna­skap og hót­unum þegar það reynir að fram­fylgja grímu­skyldu að sögn Víðis, sem var ösku­reiður vegna þessa.

Hundruð und­an­þágu­beiðna hafa borist frá þeim sótt­varn­ar­reglum sem settar voru síð­asta laug­ar­dag. Bara síð­ast­lið­inn laug­ar­dag voru und­an­þágu­beiðnir 300 tals­ins. Mik­il­vægt er að fólk leiti ekki eftir und­an­þágum nema að lífs­nauð­syn­legt sé, sagði Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Augljóst var að þungt var í Víði vegna þessa og hvatti hann fólk til að láta af þessu. Allir þyrftu að draga sig inn í skel­ina og láta lítið fyrir sér fara næstu tvær vik­urnar til að ná tökum á Covis-19 far­aldr­inum. „Það er komið að ögur­stundu núna,“ sagði Víðir.

Kór­óna­veiru­far­ald­ur­inn er ekki í veld­is­vexti hér á landi líkt og er að ger­ast í víð­ast hvar í nágranna­lönd­unum. Þar eru sjúkra­hús­pláss að fyll­ast og erf­ið­leikar þess vegna orðnir alvar­legir. Allt þarf að gera til að koma í veg fyrir að far­ald­ur­inn kom­ist í veld­is­vöxt, sagði Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir á fund­inum. 

26 inn­an­lands­mit greindust í gær, þar af voru 10 ekki í sótt­kví. Einn lést í gær á Land­spít­ala af völdum kór­óna­veirunnar og var sá á níræð­is­aldri. 16 manns hafa lát­ist af völdum sjúk­dóms­ins, þar af 6 í þeirri bylgju sem nú stendur yfir.

72 eru nú inniliggj­andi á sjúkra­húsi og þar af 3 á gjör­gæslu. Í máli Páls Matth­í­as­sonar, for­stjóra Land­spít­ala, kom fram að ástandið á gjör­gæslu væri mjög þungt núna því auk þess­ara þriggja sem glíma við Covid-19 væri fjöldi manns þar inniliggj­andi af öðrum orsökum. Staðan á Land­spít­ala væri mjög þung og álag þar veru­legt. 

2.023 eru nú í sótt­kví og sagði Þórólfur hægt að búast við því að ein­hverjir úr þeim hópi myndu grein­ast með veiruna. 1.448 eru í skimun­ar­sótt­kví eftir komu til lands­ins. Sex smit greindust á landa­mær­unum í gær. 905 manns eru nú í eina­grun, smituð af Covid-19.

Alma Möller land­læknir greindi frá því að smit hefðu verið að grein­ast í nokkuð miklu mæli á Norð­ur­landi síð­ustu daga og nú væru um 100 manns smit­aðir þar. Fjórir af þeim sem inniliggj­andi eru á sjúkra­húsi vegna Covid-19 eru inniliggj­andi á Sjúkra­hús­inu á Akureyri og var það fært á hættu­stig síð­ast­ið­inn laug­ar­dag. 

„Þetta er svo mikið kjaftæði að ég trúi því varla að við skulum þurfa að fást við þetta núna“

Hafi þungt verið í Víði þegar hann ræddi um und­an­þágu­beiðnir þá var hann bein­línis reiður þegar hann lýsti því að starfs­fólk versl­ana hefði orðið fyrir aðkasti, þurft að þola ókurt­eisi, dóna­skap og hót­anir og allt að því ofbeldi um helg­ina þegar starfs­fólkið minnti við­skipta­vini á að grímu­skylda væri í gildi í versl­unum. „Þetta er svo mikið kjaftæði að ég trúi því varla að við skulum þurfa að fást við þetta núna,“ sagði Víðir og var allt annað en sáttur við hegðun fólks. 

Páll sagði að um 140 manns hefður greinst í hópsmit­inu sem teng­ist Land­kots­spít­ala, þar af um 100 starfs­menn og sjúk­lingar. Starfs­fólk Landa­kots hefði unnið krafta­verk við að end­ur­skipu­leggja starf spít­al­ans. Þórólfur sagð­ist von­ast til að með þeim hertu aðgerðum sem nú væru í gildi myndum við ekki sjá frek­ari hóp­sýk­ingar. 

Í máli Þórólfs kom einnig fram að ekk­ert nýtt væri að frétta af bólu­efni en sótt­varn­ar­læknir væri þegar far­inn af stað með vinnu svo hægt yrði að bólu­setja fljótt og örugg­lega þegar að öruggt og virkt bólu­efni kæmi fram. Vonaðist hann til að það gæti orðið fljót­lega á nýju ári. 

Þórólfur sagð­ist gera sér grein fyrir að komin væri þreyta í marga vegna ástands­ins og þær hertu aðgerðir sem nú væru í gildi myndu auka á þær. Það væri hins vegar afara mikl­vægt að við stæðum nú saman sem þjóð og gættum að sótt­vörnum, aðgerð­irnar væru til þess gerðar að ná að slá á far­ald­ur­inn og von­að­ist hann til þess að þær færu að bíta fljótt. Þá yrði hægt að fara að slaka á þeim og aflétta ein­hverjum af þessum hertu reglum eftir tvær vikur en það yrði að fara hægt í þeim efnum. Með sam­stilltu átaki tæk­ist okkur að ná tökum á ástand­inu og þá yrði von­andi hægt að halda upp á aðvent­una og jólin með minni tak­mörk­unum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár